Fara beint í efnið

27. apríl 2023

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um strandveiðileyfi

Strandveiðar hefjast þriðjudaginn 2. maí næst komandi.

Strandveiðigreiðsla

Reglugerð um strandveiðar fiskveiðiárið 2022/2023 gildir um veiðarnar.

Umsóknarferlið:

  • Einstaklingur sem er skráður útgerðaraðili eða prókúruhafi útgerðaraðila getur sótt um strandveiðileyfi í gegnum stafræna umsóknagátt á Ísland.is með rafrænum skilríkjum.

  • Greitt er fyrir leyfið í umsóknarferlinu og er hægt að fá leyfið útgefið samstundis eða velja aðra upphafs dagsetningu.

  • Veitt leyfi eru send í stafrænt pósthólf viðkomandi á Ísland.is.

Fiskistofa bendir á að mikilvægt er að aðilar klári umsóknarferlið með því að ýta á Áfram eftir að greitt hefur verið fyrir leyfið, sjá mynd. Fiskistofa bendir aðilum á að fylgjast með því hvort leyfi hafi ekki örugglega borist í stafrænt pósthólf áður en haldið er til veiða.

Afgreiðsla strandveiðileyfis getur tafist ef opinberar upplýsingar sýna ekki fram á eignarhald þeirra aðila sem eiga eða gera út skip þar sem Fiskistofa þarf að taka þær umsóknir til sérstakrar skoðunar með tilheyrandi gagnaöflun.

Hægt er að lesa sér til um strandveiðar hér á síðunni en einnig er hægt að senda fyrirspurnir og erindi á fiskistofa@fiskistofa.is. Mikið álag er á stofnuninni í upphafi strandveiðivertíðar og beinum við því til aðila að senda frekar póst en að hringja.

Fyrirspurnir um skil aflaupplýsinga skal senda á netfangið: afladagbok@fiskistofa.is.