Reglugerð um strandveiðar gildir um veiðarnar.
Leiðbeiningar:
- Umsóknartímabil er frá 1. mars til og með 14. apríl, ekki er hægt að sækja um eftir þann tíma né breyta umsóknum.
- Útgerðaraðili fiskiskips sækir um leyfið í gegnum stafrænt umsóknarkerfi á Ísland.is.
- Skip þurfa að uppfylla öll skilyrði þegar sótt er um.
- Að öllum skilyrðum uppfylltum er leyfið gefið út daginn sem sótt er um og tekur gildi á upphafsdegi strandveiða eða á umbeðinni dagsetningu eftir upphafsdag strandveiða.
- Séu skilyrði leyfis ekki uppfyllt er hægt að sækja aftur um fyrir lok umsóknarfrests.
- Greitt er fyrir leyfið í umsóknarferlinu og mikilvægt er að klára umsóknarferlið með því að ýta á Áfram eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd.
- Veitt leyfi er sent í pósthólf viðkomandi umsækjanda á Ísland.is.
- Hægt er að fá frekari upplýsingar um umsóknarferlið með því að senda tölvupóst á fiskistofa@fiskistofa.is.
Skilyrði fyrir útgáfu strandveiðileyfis
Skip
Skip þarf að vera skráð fiskiskip í skipaskrá Samgöngustofu.
Haffæri skipsins sem sótt er um leyfi fyrir, verður að vera í gildi á umsóknardegi. Samgöngustofa sér um útgáfu haffæriskírteina.
Ekki er heimilt að stunda veiðar á grundvelli annarra leyfa á meðan strandveiðileyfið er í gildi.
Ekki er hægt að fá strandveiðileyfi fyrir svo kallaða „þróunarsjóðsbáta“.
Eignarhald
Heimilt er að veita hverjum einstakling, útgerð eða lögaðila eitt leyfi til strandveiða. Eignarhald eiganda og útgerðar skips verður því að liggja fyrir áður en leyfi er veitt.
Eignarhald skips ræðst af skráningu í skipaskrá Samgöngustofu.
Eignarhald lögaðila miðast við skráningu raunverulegs eiganda hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.
Sé ekki skráð 100% eignarhald lögaðila hjá fyrirtækjaskrá þurfa gögn þar um að fylgja umsókn.
Sá einstaklingur sem ætlar að róa skipinu:
þarf að eiga meira en 50% í skipinu.
þarf að eiga meira en 50% í þeim lögaðila sem á skipið sem sótt er um leyfi fyrir.
Takmarkanir vegna aflamarks
Ekki er heimilt að gefa út strandveiðileyfi til skips hafi aflamark í þorskígildum talið, umfram það aflamark sem flutt hefur verið til skips, verið flutt frá skipinu.
Frá því að sótt er um strandveiðileyfi er ekki heimilt að fara yfir þessi viðmið.
Veiðisvæði og löndun
Leyfið er veitt á því svæði þar sem heimilisfesti útgerðar viðkomandi fiskiskips er skráð, samkvæmt þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
Öllum afla skipsins á að landa í löndunarhöfnum þess landsvæðis.
Ekki er hægt að breyta veiðisvæði eftir að leyfi hefur verið veitt.
Gildi leyfis og breytingar
Leyfið fellur sjálfkrafa úr gildi ef:
skip er selt eða leigt.
ef eignarhald eiganda skips eða útgerðar breytist.
gerðir eru samningar sem færa stjórn eða tekjuöflun til annars aðila en leyfishafa.
Fjareftirlit og tilkynningarskylda
Skýrari kröfur gilda um virkni fjareftirlitsbúnaðar.
Skylt er að tilkynna til Landhelgisgæslunnar ef búnaður bilar eða samband rofnar.
Leyfið kostar 22.000 krónur, samhliða innheimtir Fiskistofa strandveiðigjald sem er 50.000 krónur
Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferli og kostar leyfið í heild sinni 72.000 krónur

Þjónustuaðili
Fiskistofa