10. október 2025
10. október 2025
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í lýðheilsusjóð fyrir úthlutun 2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Lýðheilsusjóð fyrir úthlutun 2026. Umsóknarfrestur er til 30. október 2025

Við styrkveitingar að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á lýðheilsuáskoranir barna og ungmenna. Þetta eru áskoranir sem snerta andlega líðan (kvíða, vanlíðan og einmanaleika), skjánotkun, neyslu koffíndrykkja, hreyfingarleysi, ofbeldi, tóbaks- og nikótínnotkun, notkun áfengis og annarra vímuefna, spilafíkn, holdafar, næringu og svefn.
Við úthlutun styrkja verða í forgangi verkefni á eftirtöldum sviðum sem byggja á sterkum rannsóknargrunni:
Geðheilsu og þroska á fyrstu æviárunum
Skólanum sem vettvangi heilsueflingar og forvarna
Félagstengslum barna og ungmenna
Heilbrigðum uppvaxtarskilyrðum og lifnaðarháttum barna og ungmenna
Inngildingu og jöfnum tækifærum barna og ungmenna í samfélaginu
Eflingu heilsulæsis og fræðslu til að vinna gegn fordómum
Heildrænar lýðheilsuáætlanir heilsueflandi samfélaga
Við úthlutun verður einnig tekið mið af eftirfarandi stefnum og aðgerðaáætlunum:
Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi
Stjórnarsáttmáli um bætta lýðheilsu, aukna velsæld og jafnt aðgengi
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið. Gera þarf grein fyrir hvernig árangur verkefnis verður metinn og skila framvinduskýrslu að verkefni loknu. Víðtækt samstarf hagsmunaaðila í samfélaginu er kostur.
Aðilar sem selja eða markaðssetja áfengi, nikótín eða orkudrykki til ungmenna geta ekki hlotið styrk úr Lýðheilsusjóði.
Umsóknarfrestur er til 30. október 2025
Sótt er um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins
Nánari upplýsingar um Lýðheilsusjóð á vef embættis landlæknis