21. mars 2024
21. mars 2024
Öndunarfærasýkingar. Vika 11 árið 2024
Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.
Greiningum á COVID-19 og RSV hefur farið stöðugt fækkandi frá áramótum en inflúensa er enn í nokkuð stöðugri dreifingu. Langflest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa verið af inflúensustofni A.
Einstaklingum inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingar hefur fækkað frá áramótum. Undanfarnar vikur hafa flestir af þeim sem liggja á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu verið með staðfesta inflúensu.
Bæði mislingar og hettusótt hafa borist til landsins nýverið. Hingað til hafa sjö hettusóttartilfelli verið greind á þessu ári og eitt tilfelli mislinga.
Bólusetningarátak er yfirstandandi hjá heilsugæslunni til að draga úr áhrifum beggja atvika, fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu.
Sóttvarnalæknir