Fara beint í efnið

30. júní 2026

Ný kennslumyndbönd um sýkingavarnir – ósýnileg áskorun

Nú eru aðgengileg þrjú ný skýringar- og kennslumyndbönd sem fjalla á einfaldan og myndrænan hátt um þá ósýnilegu áskorun sem felst í að rjúfa smitleiðir og útbreiðslu baktería og mikilvægi sýkingavarna í heilbrigðisþjónustu.

Myndböndin eru sérstaklega ætluð til fræðslu og kennslu starfsfólks á heilbrigðisstofnunum og henta vel bæði við nýliðafræðslu og reglubundna endurmenntun.

Þau sýna með skýrum hætti hvernig bakteríur geta borist á milli einstaklinga og umhverfis, hvers vegna grundvallarsýkingavarnir skipta máli og hvernig rétt vinnubrögð geta dregið úr hættu á smitum.

Myndböndin eru textuð á íslensku en byggja jafnframt á skýru myndmáli og einfaldri framsetningu sem gerir þau aðgengileg og auðskiljanleg einnig fyrir starfsfólk sem hefur íslensku ekki að móðurmáli.

Við hvetjum stjórnendur, fræðslustjóra og annað heilbrigðisstarfsfólk til að nýta myndböndin í fræðslu og umræðum um mikilvægi sýkingavarna – því það sem við sjáum ekki getur haft mest áhrif.

Myndbandið Ósýnileg áskorun I er framleitt af Bispebjerg og Frederiksberg Hospital Danmörku og Ósýnileg áskorun II og III af Norwegian Institute of Public Health.

Öll myndböndin eru unnin af Martin G. Pedersen // MP Film.

Sjá nánar:

Sjá einnig fleiri myndbönd um sýkingavarnir á vef embættis landlæknis.

Sóttvarnalæknir