22. september 2026
22. september 2026
Norræn rannsókn: Sex af hverjum tíu ungmennum drekka orkudrykki í hverri viku
Tæplega fjórðungur ungmenna á Norðurlöndum neytir orkudrykkja að minnsta kosti einu sinni á dag og sex af hverjum tíu að minnsta kosti einu sinni í viku. Nær helmingur segist stundum ekki komast í gegnum daginn án orkudrykkja. Þetta kemur fram í nýrri norrænni skýrslu.

Í skýrslunni segjast 30% ungmenna á aldrinum 15–19 ára hafa fundið fyrir neikvæðum heilsufarsáhrifum af neyslu orkudrykkja, meðal annars hjartsláttartruflunum, svefntruflunum og svima. Þá segjast 15% finna fyrir vanlíðan þegar þau drekka ekki orkudrykki og eitt af hverjum þremur ungmennum vill draga úr neyslu sinni.
Tiltölulega stór hluti, eða 39%, segist hafa byrjað að neyta orkudrykkja 13 ára eða yngri, en 16% segjast aldrei neyta orkudrykkja.
Bragðið algengasta ástæðan
Þegar ungmennin voru spurð um ástæðu fyrir neyslu á orkudrykkjum nefndu flest þeirra bragðið, eða 73% þeirra. Aðrar algengar ástæður eru til að fá meiri orku (51%) og að halda sér vakandi (34%). Niðurstöðurnar sýna einnig að drengir drekka oftar orkudrykki en stúlkur.
Alls tóku 4.916 ungmenni þátt í rannsókninni en Matvælastofnun Svíþjóðar (Livsmedelsverket) sá um framkvæmd hennar. Verkefnið var fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni.
„Niðurstöður rannsóknarinnar senda skýr viðvörunarmerki um að allt of mörg ungmenni séu háð orkudrykkjum til að komast í gegnum daglegt líf. Það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir andlega heilsu ungs fólks og skólagöngu þeirra. Þetta er sameiginleg áskorun fyrir Norðurlöndin og við þurfum í sameiningu að rjúfa þetta mynstur,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Mest neysla í Svíþjóð
Orkudrykkir eru orðnir eðlilegur hluti af daglegu lífi norrænna ungmenna en neyslan er mismikil milli landa. Neyslan er mest í Svíþjóð en þar drekka 28% ungmenna orkudrykki að minnsta kosti einu sinni á dag og allt að 75% að minnsta kosti einu sinni í viku. Fleiri ungmenni í Svíþjóð en á öðrum Norðurlöndum segjast neyta orkudrykkja til að standa sig betur í skóla. Þá eru fleiri sænsk ungmenni sem auk þess taka koffínbætt fæðubótarefni og drekka reglulega kóladrykki, miðað við í hinum Norðurlöndunum.
Félagslegi þátturinn mikilvægur í Danmörku
Neysla orkudrykkja er minnst meðal ungmenna í Danmörku. Þar neyta 14% ungmenna orkudrykkja daglega og 43% vikulega. Dönsk ungmenni segjast oftar neyta orkudrykkja vegna þess að vinir þeirra gera það. Þau segjast einnig oftar drekka te eða íste miðað við hin Norðurlöndin.
Í Noregi er orkudrykkjaneyslan einnig undir meðaltali á Norðurlöndunum, þar sem 18% drekka orkudrykki daglega og ríflega helmingur vikulega. Þar eru bragð og þörfin fyrir orku helstu ástæðurnar sem nefndar eru fyrir neyslunni.
Finnsk ungmenni byrja fyrr
Finnland sker sig frá hinum löndunum að því leyti að neyslan byrjar fyrr hjá mörgum. Fjórðungur segist hafa byrjað fyrir 12 ára aldur og einn af hverjum þremur 12-13 ára. Í Finnlandi er einnig algengara að ungmenni drekki kaffi og ískaffi en á hinum Norðurlöndunum.
Túlka ber niðurstöður frá Íslandi með varúð
Túlka ber niðurstöður frá Íslandi með nokkurri varúð þar sem fjöldi svarenda var tiltölulega lítill. Rannsóknin sýnir að orkudrykkjaneysla á Íslandi er undir meðaltali á Norðurlöndum, þar sem 19% íslenskra ungmenna drekka orkudrykki daglega og 46% drekka þá vikulega. Þar eru bragðið og þörf fyrir orku sagðar helstu ástæður fyrir neyslunni.
„Það sem veldur mér mestum áhyggjum er að svo mörg ungmenni lýsa því að þau eigi erfitt með að hafa stjórn á neyslunni. Þegar neyslan er farin að hafa áhrif á svefn, líðan eða daglegt líf er ástæða til að grípa til aðgerða. Nú þurfum við að skilja betur hvað getur hjálpað ungu fólki að breyta neysluvenjum sínum og hvaða úrræði eru í boði sem virka fyrir þennan hóp. Þess vegna munum við í seinni hluta verkefnisins ræða beint við ungmennin sjálf,“ segir Sabina Litens Karlsson, eiturefnafræðingur og næringarfræðingur hjá sænsku matvælastofnuninni og verkefnisstýra rannsóknarinnar.
Staðreyndir
Rannsóknin Energy drink and caffeine consumption among Nordic adolescents er fyrri hluti framhaldsverkefnis við NORMO 2025, norræna rannsókn á matarvenjum og lífsháttum fullorðinna.
Markmiðið er að móta raunhæfar stefnumótandi tillögur til að draga úr neyslu orkudrykkja meðal ungs fólks á Norðurlöndum.
Rannsóknin var birt 22. september 2026 og það var Matvælastofnun Svíþjóðar sem annaðist hana í samstarfi við Origo Group og samstarfsaðila frá stjórnvöldum hinna norrænu landanna.
Rannsóknin byggir á svörum ungmenna í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Noregi og á Íslandi og fjallar um neyslumynstur, viðhorf og notkun orkudrykkja og annarra koffínvara.
Í seinni hluta verkefnisins, sem hefst haustið 2026, munu ungmenni taka virkan þátt í gegnum umræðuhópa. Markmiðið er að þróa aðgerðir sem gagnast fyrir ungmennin sjálf. Tillögur verkefnisins verða kynntar sumarið 2027.
Frekari upplýsingar
Dr. Ellen Alma Tryggvadóttir, verkefnastjóri næringar, ellen.a.tryggvadottir@landlaeknir.is
Jonathan Eng, Norræna ráðherranefndin, +45 27 10 94 67, joneng@norden.org