27. apríl 2026
27. apríl 2026
Könnun á heilsulæsi fullorðinna á Íslandi
Embætti landlæknis stendur fyrir könnun á heilsulæsi meðal fullorðinna um þessar mundir. Þetta er í fyrsta skipti sem heilsulæsi er kannað með heildrænum hætti á landsvísu hér á landi.

Gallup leggur könnunina fyrir og svörum er safnað nú á vormánuðum. Við hvetjum þau sem fá boð um þátttöku að leggja embættinu lið og svara spurningalistanum. Góð þátttaka er mjög mikilvæg svo að áreiðanlegar upplýsingar fáist um stöðu heilsulæsis meðal þjóðarinnar og svo hægt sé að byggja á þeim í framhaldinu.
Evrópuverkefnið JA PreventNCD
Embætti landlæknis tekur þátt í umfangsmiklu samevrópsku verkefni, JA PreventNCD, þar sem meginmarkmiðið er að koma í veg fyrir ósmitbæra sjúkdóma svo sem sykursýki, krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma. Einn þáttur í verkefninu snýst um félagslegan ójöfnuð í heilsu og meðal verkþátta er að bæta heilsulæsi. Hluti af þeirri vinnu er að taka þátt í alþjóðlegu samstarfsneti sem vinnur að mælingum á heilsulæsi (M-POHL) á vettvangi Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar. Markmið þess er meðal annars að mæla heilsulæsi meðal almennings.
Frekari upplýsingar
Jenný Ingudóttir, verkefnastjóri lýðheilsusviði
Ingibjörg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri lýðheilsusviði
Andrea Gerður Dofradóttir, verkefnastjóri heilbrigðisupplýsingasviði
Margrét Jóhannsdóttir, verkefnastjóri lýðheilsusviði