Fara beint í efnið

Könnun á heilsulæsi fullorðinna á Íslandi 2026

Könnun á heilsulæsi fullorðinna er hluti af Evrópsku heilsulæsiskönnuninni M-POHL og þátttöku Íslands í samevrópska verkefninu JA PreventNCD. Meginmarkmið JA PreventNCD er að innleiða árangursríkar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir ósmitbæra sjúkdóma, eins og krabbamein, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma.

Heilsulæsi skiptir máli

Heilsulæsi lýsir getu einstaklinga til að afla sér upplýsinga, skilja þær, leggja mat á þær og nýta með þeim hætti að þær styðji við og viðhaldi góðri heilsu. Gott heilsulæsi eykur hæfni fólks til að taka upplýstar ákvarðanir um eigin heilsu og styrkir sjálfræði þess og virka þátttöku í samfélaginu. Takmarkað heilsulæsi hefur hins vegar verið tengt áhættusamari hegðun, verri heilsu, tíðari sjúkrahúsinnlögnum og auknum kostnaði fyrir heilbrigðiskerfið. Efling heilsulæsis getur því stuðlað að minni ójöfnuði í heilsu og bættri heilsu og vellíðan. Heilsulæsi hefur ekki áður verið mælt á landsvísu og veita þessar niðurstöður því mikilvægar og dýrmætar upplýsingar um stöðuna.

Þátttaka

Gallup framkvæmir könnunina í samstarfi við embættið og verður hún lögð fyrir á vormánuðum 2026.

Hafa samband

Netfang rannsóknar: rannsoknir@landlaeknir.is

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis