Fara beint í efnið

9. júní 2021

Hægt er að sækja um vegabréf á öllum sýsluskrifstofum

Það er vert að vekja athygli á því að hægt er að sækja um vegabréf á skrifstofum sýslumanna um allt land, óháð búsetu.

Ferðalög

Margir verða á faraldsfæti í sumar og þá er gott að hafa í huga að sá möguleiki er fyrir hendi að fara inn á sýsluskrifstofur hvar sem er á landinu og ganga frá umsókn. Svo er hægt að fá vegabréfin send heim eða hægt að nálgast þau á þeirri sýsluskrifstofu sem óskað er eftir.

Best er að koma fljótlega eftir opnun og hér má sjá opnunartíma sýsluskrifstofanna um allt
land.


Framvísa á eldra vegabréfi eða gefa upplýsingar um týnt vegabréf. Ef meira en ár er eftir af gildistíma týnds vegabréfs verður það nýja einungis gefið út til sama tíma og það eldra.
Ef sækja á um vegabréf fyrir börn undir 18 ára aldri þurfa báðir foreldrar að sækja um nema annað foreldri fari með forsjá. Fleiri almennar upplýsingar um vegabréf má nálgast hér.