20. september 2023
20. september 2023
Fréttabréf september 2023 #2
Fréttabréf Stafræns Íslands september #2 2023. CIO Bandaríkjaforseta á Tengjum ríkið, Ísland til fyrirmyndar fyrir aðrar þjóðir og við bjóðum nýja vefi velkomna á Ísland.is
CIO Bandaríkjaforseta á Tengjum ríkið
Clare Martorana er aðal fyrirlesari Tengjum ríkið í ár en hún leiðir upplýsingatæknimál fyrir Bandaríkjaforseta.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Stafrænt samfélag og skiptist í undirflokkana Stafræn forysta, Stafrænt Ísland og Stafrænt öryggi. Ráðstefnan í ár er haldin í samstarfi við fund Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem Ísland fer með formennsku.
Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna hér.
Miðasala er í fullum gangi en miðaverð er 4.900 kr. og á jafnt við um miða í sal sem og í streymi. Athugið að takmarkaður fjöldi miða er í boði fyrir þá sem vilja sitja erindi sem fara fram í Kaldalóni.
Velkomin Samgöngustofa
Stofnunum á Ísland.is fjölgar hratt þessi misserin en nú hefur Samgöngustofa bæst í hópinn. Það er mikill liðsstyrkur að fá stóra þjónustustofnun eins og Samgöngustofu í Ísland.is samfélagið.
Nýr vefur Samgöngustofu á Ísland.is
Velkomnar NTÍ
Náttúruhamfaratryggingar Íslands bættust sömuleiðis í Ísland.is samfélagið á dögunum og bjóðum við þau hjartanlega velkomin í hópinn.
Ísland til fyrirmyndar fyrir aðrar þjóðir
AWS Institute heimsótti Stafrænt Ísland í vor til að kynna sér nánar þann árangur sem hefur náðst í stafrænum málum. Þar var skoðað sérstaklega hvað liggur að baki þessum árangri og rýnt í tvö árangursrík verkefni.
Digital Iceland: How central governments can transform public services - AWS Public Sector
How Iceland put residents first when designing new digital service - AWS Public Sector
Iceland’s advice to other governments for successful digital transformation - AWS Public Sector
Ísland.is í Open Access Government
Áhugi á velgengni Íslands í stafvæðinu kemur víða frá en Open Access Government birti grein um árangurinn á dögunum. Open Access Government er leiðandi vefmiðill á sínu sviði og nær hátt í 700 þúsund manns mánaðarlega.
Grein í Open Access Government
Teymi Stafræns Íslands í heimsókn
Stafrænt Ísland bauð fulltrúum teyma í heimsókn í morgun til að fara yfir þau verkefni sem eru framundan. Það eru 20 teymi sem tilheyra rammasamningi Stafræns Íslands frá 14 fyrirtækjum sem telja hátt í 100 manns þegar allir eru virkjaðir.
Meðal verkefna Stafræns Íslands:
Ákvörðun um skipti dánarbús
Birting á réttindum til P-korts í Ísland.is appi og Mínum síðum
Eigendaskipti vinnuvéla og tækja
Endurnýjun ökuréttinda
Ísland.is app - fjármál
Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu
Mínar síður: Heilsugæsla og tannlæknar ítrun
Mínar síður: Hugverkaréttindin mín
Mínar síður: Námsyfirlit úr INNU
Mínar síður: Starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks
Rafræn erfðafjárskýrsla
Mínar síður: Upplýsingar um lyfjakaup og lyfjaskírteini
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Samráðsgátt - uppfært notendaviðmót
Staðfesting stafrænna ökuskírteina hjá Vínbúðunum
Stafrænt veiðikort
Tilkynning um vinnuslys
Umsón um dvalarleyfi
Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun
Umsókn um ellilífeyri
Umsókn um fæðingarorlof: Varanlegt fóstur og dvalarstyrkur
Umsókn um háskóla
Umsókn um ríkisborgararétt ítrun
Umsókn um sannvottun
Umsókn um vegabréf
Umsókn um ökuritakort
Upplýsingavefur um háskólanám á Íslandi
Vefur Náttúruhamfaratrygginga á Ísland.is
Vefur Réttindagæslu fyrir fatlað fólk á Ísland.is
Vefur Samgöngustofu á Ísland.is
Vefur Tryggingastofnunar á Ísland.is
Vefur Vinnueftirlitsins á Ísland.is