5. júlí 2022
5. júlí 2022
Fréttabréf júlí 2022
Fréttabréf Stafræns Íslands júlí 2022.
Tengjum ríkið - forskráning
Opin ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera fer fram 22.september 2022. Á ráðstefnunni verður fjallað um nýjar lausnir í stafrænni stjórnsýslu og ýmsar spennandi nýjungar kynntar.
Dagskráin verður þéttsetin glæsilegum erindum bæði frá stofnunum sem gegna lykilhlutverki í þjónustu við almenning sem og samstarfsaðilum Stafræns Íslands.
Stefnt er að því að ráðstefnan verði bæði á staðnum sem send út í streymi en í fyrra skráðu sig um 1400 manns.
Sjúkratryggingar flytja á Ísland.is
Sjúkratryggingar hafa unnið markvisst að því að bæta þjónustu við viðskiptavini sína síðustu misseri. Stór áfangi á þeirri vegferð náðist á dögunum þegar Sjúkratryggingar fluttu vefsvæði sitt alfarið inn á Ísland.is.
Stafræn umsókn um sölu áfengis
Sýslumenn hafa umsjón með leyfi um sölu áfengis á framleiðslustað. Umsóknin er stafræn á vef sýslumanna á Ísland.is. Sýslumenn hafa unnið markvisst að því síðustu misseri að koma öllum umsóknum á stafrænt form með það að markmiði að bæta þjónustu.
Stökk upp á við í rafrænum þinglýsingum
Frá því í maí hafa bæði Landsbanki og Arionbanki nýtt sér rafrænar þinglýsingar að fullu. Þetta þýðir að fjöldi bíla og fasteigna sem voru þinglýst rafrænt fóru úr 314 í apríl í 1132 nú í júní.
Endurbætur á umsóknarkerfi Ísland.is
Umsóknarkerfi Ísland.is er í stöðurgri þróun í samtarfi við stofnanir. Tveimur nýjungum hefur verið bætt við sem nýtast umsækjendum vel en leit hefur verið endurbætt þannig að auðvelt er að leita eftir texta í titli umsóknar eða eftir stofnun. Þá hefur "ný umsókn" takki bæst við á yfirliti umsókna.
Meðal verkefna Stafræns Íslands þessa dagana eru:
Vegabréfið þitt - birting upplýsinga á Mínum síðum Ísland.is og í appi
Stafræn umsókn um vegabréf
Rafræn þinglýsing á afsali fasteigna
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Umboðskerfi fyrir stofnanir
Vefur Útlendingastofnunar á Ísland.is
Rafræn skil á ársreikningum til Ríksendurskoðunar
Tveggja ára vegvísir stafrænnar þjónustu sveitafélaga á Ísland.is
Fjárhagsaðstoð Sveitafélaga á Ísland.is
Umsóknir fyrir fyrirtæki
Umboðskerfi fyrir fyrirtæki
Skotvopnaleyfi birt í Ísland.is appinu og Mínum síðum Ísland.is
ADR og vinnuvélaréttindi birt í Ísland.is appinu og Mínum síðum Ísland.is