Fara beint í efnið

Áfengisleyfi eru nokkur:

Skilyrði

Til að fá áfengisleyfi þarf viðkomandi að hafa leyfi til tollfrjálsrar verslunar eða stunda í atvinnuskyni eitt af eftirtöldu


Umsækjandi þarf einnig að:

  • Hafa tilkynnt ríkisskattstjóra um atvinnustarfsemi sína og verið færður á fyrirtækjaskrá

  • Hafa tilkynnt ríkisskattstjóra um starfsemina samkvæmt lögum um virðisaukaskatt

Aldursskilyrði

  • Ef umsækjandi er einstaklingur þá þarf hann að vera orðinn 20 ára

  • Ef umsækjandi er félag með ótakmarkaða ábyrgð þurfa eigendur og framkvæmdastjóri félagsins að vera orðnir 20 ára. 

  • Ef umsækjandi er félag með takmarkaða ábyrgð þurfa allir stjórnarmenn og framkvæmdastjóri félagsins að vera orðnir 20 ára.

Gildistími

Áfengisleyfi sem gefið er út til umsækjanda í fyrsta sinn gildir í eitt ár. 

Ef leyfið er endurnýjað er gildistími þess ótímabundinn.

Umsóknarferli

Útgefin leyfi eru bundin við nafn og kennitölu leyfishafa. Sækja þarf um nýtt leyfi ef:

  • nýr aðili tekur við rekstrinum

  • starfsemin er flutt í annað húsnæði

Ef flytja á starfsemina í annað umdæmi þarf að sækja um nýtt leyfi í því umdæmi.

Fylgigögn

  • Vottorð fyrirtækjaskrár (ef umsækjandi er lögaðili)

  • Staðfest VSK númer

  • Afrit af starfsleyfi heilbrigðisnefndar

Reglur og refsingar

Ef leyfishafi vanrækir skyldur sínar eða uppfyllir ekki þau skilyrði sem gilda um reksturinn veitir sýslumaður honum skriflega áminningu. 

Áminningin gildir í tvö ár og verði leyfishafi uppvís að frekari vanrækslu á meðan áminningin er í gildi verður hann sviptur leyfinu um ákveðinn tíma. 

Brot á áfengislögum og reglum varða sektum eða fangelsi í allt að sex ár. 

Lögreglustjórar í hverju umdæmi hafa eftirlit með starfsemi leyfishafa ásamt ríkisskattstjóra og tollstjóra.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15