Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. apríl 2025

Fréttabréf apríl 2024

Fréttabréf Stafræns Íslands í apríl 2025

Vorverk Stafræns Íslands

Mikill þungi hjá teyminu hefur farið í undirbúning og eftirfylgni nýs rammasamnings. Einfaldasta lýsing á virkni rammasamningsins er að þar bjóða aðilar á einkamarkaði fram krafta sína í tvær tegundir teyma, alhliðateymi og vefteymi. Það er því ekki verið að bjóða í eitt tiltekið verkefni heldur bjóða fram teymi sem tekur þátt í þróunarverkefnum og stafvæðingu hins opinbera í samstarfi við Stafrænt Ísland. Þetta er í 3ja skipti sem Stafrænt Ísland býður út hugbúnaðarþróun sína með þessum hætti og þátttaka að þessu sinni mikil. 22 aðilar buðu fram alhliðateymi og 14 fyrirtæki buðu fram vefteymi. Verið er að leggja lokahönd á hæfnismat teyma en þau sem standast hæfnismat fá tækifæri til að leysa verkefni og kynna. Verkefni verða afhent hæfum teymum 5.maí og kynningarnar munu fara fram dagana 12. -14. maí. Í kjölfarið verður 10 teymum í hvorum hópi boðin þátttaka í rammasamningnum.


Umsókn um framhaldsskóla

Umsóknir um framhaldsskóla er að finna á Ísland.is. Fyrstu umsóknir fóru í lofitð um starfsbrautir, þá eldri nemendur og nýnemar úr grunnskólum. Á hverju vori berast framhaldsskólum um 5 þúsund umsóknir frá nýnemum sem fara nú allar í gegnum Umsóknarkerfi Ísland.is.

Skoða umsókn um framhaldsskóla


Magnskráning km stöðu

Til að koma til móts við þá aðila sem eiga mörg ökutæki hefur þróuð einfaldari leið til að skrá kílómetrastöðu en þrjár leiðir eru í boði, handvirkt, með Excel/CSV skjali eða vefþjónustu.

Leiðbeiningar fyrir magnskráningu


Rafbílastyrkir afgreiddir sjálfvirkt

Frá því styrkveiting hófst í janúar 2024 hafði 3421 styrkir verið veittir sl. mánaðarmót, með alsjálfvirkum hætti.

Lesa frétt um rafbílastyrki


Þróun stafrænna skírteina

Stærstu breytingarnar framundan eru að stafræn skírteini munu hætta að birtast í símaveskjum og munu einungis birtast í Ísland.is appinu sem nú styður skírteini með strikamerkjum. Einnig verða áfram birtar upplýsingar um skírteinin, gildistíma þeirra og fleira, á Mínum síðum Ísland.is.

Þróun stafrænna skírteina


Framvindufréttir Ísland.is

Fá og með næstu mánaðarmótum mun Stafrænt Ísland senda frá sér sérstakt fréttabréf mánðarlega tileinkað tölfræðilegum upplýsingum um stöðu mála í stafvæðingu hins opinbera. Sami póstlisti verður notaður til að koma þeim upplýsingum áleiðis.

Stafræna vegferðin í tölum


Útgáfufréttir

Stafrænt Ísland heldur áfram að þróa og bæta stafrænar lausnir með reglulegum uppfærslum á bæði kjarnaþjónustum og einstökum stafrænum þjónustum. Útgáfufréttir er ný leið til að miðla þeirri öru þróun sem er að eiga sér stað.

Útgáfa 22.apríl 2025


Fundur tæknistjóra ríkisins

Tæknistjórar ríkisins stilltu saman strengi á vel heppnuðum fundi 28. apríl sl. Farið var yfir stöðuna í dag, það sem er framundan og næstu skref í tæknimálum ríkisins rædd. Um 50 manns sóttu fundinn.


Meðal verkefna Stafræns Íslands eru:

Umsóknir

  • Staðfesting á skólavist (grunnskóli)

  • Skipta um grunnskóla

  • Afturköllun ellilífeyris

  • Skráning leigusamnings

  • Tekjuáætlun TR

  • Tilkynning um netglæp

Umboðskerfi

  • Umboð fyrir framkvæmdastjóra fyrirtækja

Stjórnborð

  • Tölfræði Stafræns pósthólfs fyrir stofnanir

Fundir / kynningar

  • TÖrnámskeið forsíður 21.maí

Ráðstefnur

  • Tengjum ríkið 18.september

Vefir í vinnslu

  • Almannavarnir

  • Dómstólasýslan

  • Framkvæmdasýslan

  • Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

  • Landspítali

  • Lögreglan

  • Rannís

  • Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

  • Rammaáætlun

  • Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa

Mínar síður Ísland.is

  • Lyfjaávísanir og lyfjasaga

  • Staða á biðlista

Tilkynningar

  • Lyfjaskírteini rennur út

  • 18 ára afmæli

Stafrænt pósthólf

  • Gagnvirk samskipti

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.