Fara beint í efnið

8. nóvember 2022

Bið eftir völdum skurðaðgerðum - greinargerð

Embætti landlæknis hefur birt samantekt um bið eftir völdum skurðaðgerðum og ítarlegar tölulegar upplýsingar.

Embætti Landlæknis - merki

Embætti landlæknis hefur birt samantekt um bið eftir völdum skurðaðgerðum og ítarlegar tölulegar upplýsingar. Ljóst er að enn bíða of margir umfram viðmið embættisins um ásættanlegan biðtíma í flestum aðgerðaflokkum og þeim hefur fjölgað hlutfallslega sem beðið hafa lengur en þrjá mánuði.

Ítarlegri tölulegar upplýsingar um bið í öllum aðgerðaflokkunum og fjölda aðgerða undanfarin ár, að meðtöldu þessu ári, eru í skjalinu „Bið eftir völdum skurðaðgerðum og fjöldi framkvæmdra aðgerða 2018-2022" á vef embættisins. Í flipum í skjalinu eru myndir sem sýna þróun biðlista undanfarin ár og fjölda framkvæmdra aðgerða í völdum aðgerðaflokkum. Á vef landlæknis er einnig að finna eldri greinargerðir.

Fyrirspurnum vegna samantektarinnar skal beina til:

Kjartans Hreins Njálssonar
aðstoðarmanns landlæknis
Netfang: kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is
Sími: 510-1900