Fara beint í efnið

27. apríl 2026

Alþjóðleg vika tileinkuð bólusetningum

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) tileinkar bólusetningum eina viku á ári, dagana 24.–30. apríl. Í Evrópu standa bæði WHO Europe og Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) að gerð efnis og miðlun upplýsinga í tengslum við evrópsku bólusetningavikuna.

Þetta árið er áhersla lögð á að bólusetningar virka fyrir allar kynslóðir.

Almennar bólusetningar sem voru fyrsti vísir að bólusetningaráætlun barna hér á landi hafa verið aðgengilegar á Íslandi í yfir 75 ár, en fyrstu lögin sem gerðu bólusetningar aðrar en gegn bólusótt aðgengilegar öllum börnum hér á landi voru sett 1950. Árið 1974 lagði svo Alþjóðaheilbrigðisþingið grunn að því að öll lönd kæmu sér upp bólusetningaráætlun fyrir börn og er því hugmyndin um að öll börn eigi rétt á ákveðnum bólusetningum rúmlega 50 ára gömul. Flestir núlifandi íbúar landsins hafa því fengið bólusetningar sem börn.

Undanfarna áratugi höfum við svo lært betur á bólusetningar, líftíma varnar sem þær veita og ný bóluefni sem gagnast gegn sjúkdómum sem hrjá eldri aldurshópa líka eða ef til vill fremur en börn. Því hafa víða komið fram ráðleggingar um bólusetningar fyrir fullorðna og/eða aldraða og undanfarin ár hafa sum lönd jafnvel sett upp bólusetningaráætlanir fyrir fullorðna. Finnland er það nágrannaland okkar sem lengst hefur gengið í þessu og er með áætlun um reglulegar endurbólusetningar gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta alla ævi, auk fleiri bóluefna í áætlun fyrir eldri fullorðna, svo sem bólusetningar gegn lungnabólgubakteríu. Noregur birti áætlun fyrir aldraða á árinu 2025.

Hér á landi er ekki til áætlun fyrir fullorðna en til eru leiðbeiningar um tilefni til örvunar á barnaveiki-, stífkrampa- og kíghóstabólusetningu, leiðbeiningar um örvun mislingabólusetningar hjá fólki í árgöngum 1975-1987 auk leiðbeininga um bólusetningar áhættuhópa gegn lungnabólgu, hettusótt, lifrarbólguveirum og fleira. Mjög misgóð þátttaka er í bólusetningum fyrir fullorðna hér á landi, enda eru þær yfirleitt gerðar á kostnað einstaklinga, nema inflúensubólusetningar og undanfarin ár COVID-19 bólusetningar. Hvað áhættuhópa varðar hefur almennt ekki verið hægt að meta þátttöku.

Með alþjóðlegu bólusetningavikunni vill WHO benda á að bólusetningar eru ein hagkvæmasta og árangursríkasta aðgerð sem völ er á til að koma í veg fyrir alvarlega smitsjúkdóma hjá öllum aldurshópum. Því er fullorðið fólk sérstaklega hvatt til þess að kynna sér hvaða bólusetningar þarfnast viðhalds eða verða meira viðeigandi með hækkandi aldri.

Á island.is er hægt að sjá eftir innskráningu á Mínar síður hvort bólusetning er í gildi, lokið, útrunnin eða óskráð. Forsjáraðilar barna undir 16 ára aldri geta einnig skoðað stöðu bólusetninga hjá börnum sínum.

Sjá nánar:

Sóttvarnalæknir