Fara beint í efnið

24. júlí 2018

Staðfest mislingasmit í flugvélum Wowair

Bandarísk sóttvarnayfirvöld yfirvöld hafa staðfest að einstaklingur með smitandi mislinga var um borð í vélum WOWair þann 18.7.2018 frá London Stansted flugvelli til Keflavíkurflugvallar WW827 og frá Keflavík til Detroit sama dag WW121.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Bandarísk sóttvarnayfirvöld yfirvöld hafa staðfest að einstaklingur með smitandi mislinga var um borð í vélum WOWair þann 18.7.2018 frá London Stansted flugvelli til Keflavíkurflugvallar WW827 og frá Keflavík til Detroit sama dag WW121.

WOWair, í samvinnu við sóttvarnalækni, hafa sent farþegum ofangreindra véla nauðsynlegar upplýsingar og leiðbeiningar. Í þessum leiðbeiningum eru farþegar hvattir til að leita til sinna lækna fram til 8. ágúst nk. finni þeir fyrir einkennum sem geta bent til mislinga, sérstaklega ef þeir eru óbólusettir.

Einkenni mislinga koma yfirleitt fram 10-14 dögum eftir smit en að hámarki geta liðið 3 vikur.

Sjá nánar:

Sóttvarnalæknir