Fara beint í efnið

Dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við Ísland

Umsókn um dvalarleyfi

Dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland er veitt í undantekningartilvikum á grundvelli mats. Við matið vega fjölskyldutengsl, umönnunarsjónarmið og dvöl umsækjanda á Íslandi þyngst en í undantekningartilvikum er heimilt að veita dvalarleyfi þó umsækjandi hafi aldrei búið á Íslandi.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.

Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland

Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 16.000 krónur. Ógreidd umsókn verður endursend umsækjanda. Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við umsókn.

Dvöl á landinu meðan sótt er um

Lög

Dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla er veitt á grundvelli 78. greinar laga um útlendinga

Umsókn um dvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun