Svona sækir þú um
Smelltu á Sækja um
Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum
Veldu Umsóknir
Veldu umsóknina Uppbót á lífeyri
Fylltu út umsóknina og hengdu við fylgigögn ef þú ert með þau tiltæk.
Smelltu á Senda umsókn
Athugaðu að skrá frá hvaða tíma sótt er um.
Vinnslutími umsókna
Afgreiðsla umsókna um uppbót á lífeyri getur tekið mislangan tíma því TR þarf í mörgum tilvikum að leita upplýsinga til annarra stofnana. Ef það vantar gögn frá þér færð þú tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum undir Mín skjöl.
Þú getur fylgst með stöðu umsóknar undir Staða umsókna á Mínum síðum.
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun