Tryggingastofnun: Heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri
Ég bý á áfangaheimili, get ég fengið uppbót til að aðstoða við leiguna?
Þú gætir mögulega átt rétt á uppbót á lífeyri sem er mánaðarleg upphæð sem bætist við örorku- og ellilífeyrisgreiðslur eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur ef réttur er til staðar.
Athugið að aðeins er réttur á uppbótum ef heildartekjur þínar með greiðslum frá TR eru undir 327.004 krónur á mánuði.
Skila þarf staðfestingu frá forstöðumanni áfangaheimilisins á búsetu og tímabili búsetu ásamt umsókn.