Afgreiðslutími hefst þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist til að vinna úr umsókn þinni. Ef það vantar gögn þá færð þú skilaboð um það á Mínum síðum TR.
Umsóknir eru almennt samþykktar frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að öll skilyrði eru uppfyllt og öll fylgigögn hafa borist.
Þú getur fylgst með stöðu umsókna á Mínum síðum undir Staða umsókna.
Mál | Áætlaður afgreiðslutími |
|---|
Foreldragreiðslur vegna langveikra eða alvarlega fatlaðra barna | Að jafnaði 5 vikur |
Umönnunargreiðslur vegna langveikra og fatlaðra barna | Að jafnaði 5 vikur |
Greiðslur til einstæðra foreldra - mæðra- og feðralaun | Að jafnaði 4 vikur |
Barnalífeyrir | Að jafnaði 4 vikur |
Barnalífeyrir vegna sérstakra útgjalda | Að jafnaði 4 vikur |
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar | Að jafnaði 4 vikur |
Framlag vegna náms eða starfsþjálfunar | Að jafnaði 4 vikur |
Meðlag | Að jafnaði 4 vikur |
Bráðabirgðameðlag vegna ófeðraðs barns | Að jafnaði 4 vikur |
Sérstök framlög með barni | Að jafnaði 4 vikur |
Afturvirkni umsókna
Almennt er hægt að sækja allt að 2 ár aftur í tímann en skila þarf gögnum fyrir það tímabil.
Meðlag er hægt að sækja um allt að 1 ár aftur í tímann.
Ef ekki er tilgreint frá hvaða tíma er sótt um er miðað við að greiðslur hefjist fyrsta dag næsta mánaðar eftir að umsókn berst.