Styrkir til kaupa á hreinorku eða losunarfríum vöru- og hópferðaökutækjum (N2/M2)
Loftslags- og orkusjóður auglýsir styrki til kaupa á hreinorku vöru- og hópbifreiðum:
Hreinorku vörubifreiðar (N2)
Hreinorku hópbifreið (M2)
Skilyrði og skilmálar
Ökutækið skal vera nýskráð hjá Samgöngustofu og skal umsókn berast innan 12 mánaða frá nýskráningu ökutækis á Íslandi.
Styrkir miðast við nýskráð ökutæki eftir 1. janúar 2025.
Ökutæki sem hafa þegar hlotið styrk eða styrkvilyrði eru ekki styrkhæf.
Kaupendur nýrra ökutækja (fyrsta skráning á Íslandi) eiga rétt á fullum styrk. Kaupendur ökutækja með fyrstu skráningu erlendis innan 12 mánaða frá nýskráningu á Íslandi eiga rétt á 80% styrkupphæðar og styrkhlutfalls.
Styrkir til nýrra ökutækja eru að hámarki 33% kaupverðs (án virðisaukaskatts), en 26,4% í tilfelli ökutækja með fyrstu skráningu erlendis.
Ökutækin mega ekki vera flutt úr landi.
Önnur skilyrði sem sett eru skv. reglugerð nr. 1566/2024 með síðari breytingum.
Gögn sem fylgja skulu umsókn
Reikningur og staðfestingar á greiðslu, svo sem lánasamningur, kvittun eða afrit af greiðslu úr heimabanka.
Ef umsækjandi er ekki skráður eigandi ökutækis skjal fylgja undirritað umboð frá eiganda ökutækis sem heimilar ráðstöfun styrks á tiltekinn reikning.
Upplýsingar um ökutækið, skráningarnúmer, vænta notkun og ávinning.
Mynd af ökutæki.
Skil á lokaskýrslu
Hámarksupphæðir styrkja eru birtar í töflu hér að neðan og birtar í reglugerð (1566/2024), með fyrirvara um fjárveitingu á hverjum tíma. Hámarksupphæðir eru takmarkaðar við 80% upphæða í töflu ef ökutæki eru fyrst skráð erlendis. Dagsetningar miða við tímasetningu samþykktrar umsóknar að lokinni nýskráningu.
Flokkun / Nýskráningarár | 2026 | 2027 | 2028 |
Lítil vörubifreið (N2) 3,5-7 tonn | 2,5 m.kr. | 0,5 m.kr. | - |
Lítil vörubifreið (N2) 7-12 tonn | 5 m.kr. | 2,5 m.kr. | 2,5 m.kr. |
M2 (10 farþegar +) < 5 tonn | 5 m.kr. | 2,5 m.kr. | 2,5 m.kr. |
Upplýsingar í töflum eru birtar með fyrirvara um reglugerðarbreytingar og villur.
Umsóknir
Athugið að ef ætlunin er að sækja um styrk fyrir kaupum á fleiri en einu ökutæki þarf að senda inn sér umsókn fyrir hvert ökutæki.
Sótt er um hér fyrir ofan.
Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun