Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Umhverfismál, Loftslagsmál
Undirritunardagur
19. desember 2025
Útgáfudagur
23. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1451/2025
19. desember 2025
REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. reglugerðarinnar:
- 2. mgr. orðast svo: Til styrkhæfra ökutækja teljast ökutæki með fyrstu skráningu á Íslandi. Ökutæki sem hafa verið fyrst skráð erlendis, en eru nýskráð á Íslandi innan 12 mánaða frá fyrstu skráningu erlendis, geta fengið að hámarki 80% af þeim styrk sem veittur er fyrir ökutæki með fyrstu skráningu á Íslandi. Ökutæki sem eru fyrst skráð erlendis meira en 12 mánuðum frá nýskráningu hérlendis eru ekki styrkhæf. Hámarks kaupverðmæti ökutækja í flokkum M1 og N1 er 10.000.000 kr. Sé kaupverðmæti umfram hámarkið er ökutæki ekki styrkhæft.
- 3. mgr. orðast svo: Sé ekki sótt um styrk innan 12 mánaða frá nýskráningu ökutækis fellur styrkhæfi ökutækisins niður. Til nýrra ökutækja teljast þau er fá fyrstu skráningu hér á landi.
2. gr.
Á eftir 2. málsl. 3. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar kemur: Í tilfelli umsókna fyrir ökutæki í flokki M2, M3, N2 og N3 er umsækjanda heimilt að skila inn umboði eiganda þar sem ráðstöfun styrks er heimiluð á bankareikning annars lögaðila.
3. gr.
22. gr. reglugerðarinnar orðast svo ásamt fyrirsögn:
Styrkfjárhæðir og -hlutföll.
Eftirfarandi skulu vera hámarks styrkhlutföll og styrkfjárhæðir í úthlutunum stjórnar Loftslags- og orkusjóðs:
| Fólksbílar (M1) – nýir | 2025 | 2026 | 2027 | 2028 | Hlutföll |
| Söluverð < 10 M | 900.000 kr. | 500.000 kr. | 500.000 kr. | 0 kr. | Á ekki við |
| Söluverð > 10 M | 0 kr. | 0 kr. | 0 kr. | 0 kr. | Á ekki við |
| Atvinnubílar | 2025 | 2026 | 2027 | 2028 | Hlutföll |
| Sendibílar (N1), söluverð < 10 M | 500.000 kr. | 500.000 kr. | 500.000 kr. | 0 kr. | Á ekki við |
| Lítil vörubifreið (N2) 3,5-7 tonn | 5.000.000 kr. | 2.500.000 kr. | 500.000 kr. | 0 kr. | 33% |
| Lítil vörubifreið (N2) 7-12 tonn | 10.000.000 kr. | 5.000.000 kr. | 2.500.000 kr. | 2.500.000 kr. | 33% |
| Vörubifreið II (N3) 12-18 tonn | 10.000.000 kr. | 10.000.000 kr. | 10.000.000 kr. | 10.000.000 kr. | 33% |
| Vörubifreið II (N3) 18-26 tonn | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 33% |
| Vörubifreið II (N3) > 26 tonn | 20.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 33% |
| Hópferðabílar | 2025 | 2026 | 2027 | 2028 | Hlutföll |
| M2 (10 farþegar +) < 5 tonn | 5.000.000 kr. | 5.000.000 kr. | 2.500.000 kr. | 2.500.000 kr. | 33% |
| M3 (10 farþegar +) > 5 tonn | 10.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 33% |
| M3 almenningsvagnar/strætó | 30.000.000 kr. | 30.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 33% |
Í tilfelli fólksbíla (M1), sendibíla (N1), lítilla vörubifreiða (N2) og lítilla hópferðabíla (M2) er miðað við dagsetningu samþykktrar umsóknar að lokinni nýskráningu. Í tilfelli vöru- og hópferðabifreiða (N3, M3) er miðað við dagsetningu bindandi kauptilboðs fyrir samþykkt styrks en greiðsla styrks kemur til við nýskráningu hjá Samgöngustofu.
Fjöldi styrkveitinga Loftslags- og orkusjóðs til hreinorkuökutækja takmarkast af því sem nemur ígildi 150 ökutækjaeininga frá 1. janúar 2026. Einingafjöldi vegna vöru- og hópferðabifreiða er skilgreindur með eftirfarandi hætti:
- A-flokkur: Vörubifreið II (N3) 12-18 tonn: 0,5 einingar.
- B-flokkur: Vörubifreið II (N3) 18-26 tonn og hópferðabílar (M3) > 5 tonn og 10 farþega: 1 eining.
- C-flokkur: Vörubifreið II (N3) < 26 tonn og (M3) almenningsvagnar/strætó: 1,5 einingar.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga um Loftslags- og orkusjóð, nr. 76/2020, tekur gildi 1. janúar 2026.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti 19. desember 2025.
Jóhann Páll Jóhannsson.
Stefán Guðmundsson.
B deild — Útgáfudagur: 23. desember 2025