Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Orkumál, Loftslagsmál
Undirritunardagur
12. október 2026
Útgáfudagur
13. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1090/2026
12. október 2026
REGLUGERÐ
um Loftslags- og orkusjóð.
I. KAFLI Almennt um Loftslags- og orkusjóð.
1. gr. Hlutverk Loftslags- og orkusjóðs.
Loftslags- og orkusjóður er sérstakur sjóður sem heyrir undir ráðherra og starfar á grundvelli laga um Loftslags- og orkusjóð, nr. 76/2020. Um hlutverk sjóðsins er fjallað nánar í 2. gr. sömu laga.
2. gr. Stjórn.
Um stjórn sjóðsins og skipun fer samkvæmt 3. gr. laga um Loftslags- og orkusjóð.
3. gr. Umsýsla.
Umhverfis- og orkustofnun annast daglega umsýslu Loftslags- og orkusjóðs undir yfirstjórn stjórnar sjóðsins. Í því felst að halda utan um daglegan rekstur og beinar stuðningsaðgerðir, auglýsa úthlutanir úr samkeppnishluta sjóðsins, taka á móti umsóknum, meta umsóknir og í þeim tilvikum sem fagráð er ekki starfandi leggja tillögu að forgangsröðun fyrir stjórn sjóðsins ásamt greinargerð, sbr. 11. gr. Stjórninni er þó heimilt að framselja óháðum aðila faglega umsýslu sjóðsins samkvæmt samningi.
Ákvarðanir sem teknar eru um að veita styrki úr Loftslags- og orkusjóði eru endanlegar á stjórnsýslustigi.
4. gr. Fjármögnun sjóðsins.
Tekjur Loftslags- og orkusjóðs eru fjárveiting á fjárlögum ár hvert og eftir atvikum tímabundnar tilfærslur fjárheimilda innan hvers árs. Allur kostnaður við rekstur Loftslags- og orkusjóðs greiðist af tekjum sjóðsins eða eigin fé.
5. gr. Samkeppnisstyrkir, lán og beinn stuðningur.
Form stuðnings.
Sjóðurinn veitir annars vegar styrki og lán til samkeppnisverkefna og hins vegar til beinna stuðningsaðgerða.
Umsóknir um styrki og lán í samkeppnishluta sjóðsins eru annars vegar metnar út frá hlutverki og tilgangi sjóðsins, reglugerð þessari og áherslum stjórnvalda og ráðherra sem skulu koma fram í leiðbeiningum tengdum auglýsingum um styrki hverju sinni, sbr. II. kafla. Hins vegar eru veittir beinir styrkir til aðgerða stjórnvalda á grundvelli tiltekinna forsendna, sbr. III. kafla.
6. gr. Starfsreglur stjórnar, fundir, fundargerðir og birting gagna.
Stjórn skal setja sér starfsreglur. Formaður stjórnar boðar til funda og stýrir fundum stjórnar. Halda skal fundargerðir yfir alla fundi og þær ákvarðanir sem teknar eru. Upplýsingar um þau verkefni sem hljóta styrk eða lán úr samkeppnishluta sjóðsins skulu birtar á vef sjóðsins.
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs skal funda eftir þörfum og umfangi verkefna, að lágmarki fjórum sinnum á ári.
7. gr. Hæfisreglur.
Stjórnarfulltrúi, sem veit um ástæður er kunna að valda vanhæfi hans, skal án tafar vekja athygli formanns stjórnar á þeim. Telji formaður sig vanhæfan skal hann vekja athygli annarra stjórnarfulltrúa á því. Stjórnin ákveður í framhaldi hvort stjórnarfulltrúa/formanni beri að víkja sæti, sbr. 5. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Við mat á vanhæfi skal taka mið af ákvæðum stjórnsýslulaga.
II. KAFLI Úthlutunarreglur í samkeppnishluta.
8. gr. Hæfi verkefna og áherslur.
Lögaðilar, þ.m.t. sveitarfélög, að undanskildum A-hluta ríkisaðilum, geta sótt um styrki eða lán úr Loftslags- og orkusjóði.
Áhersla skal fyrst og fremst lögð á að styrkja verkefni sem falla að hlutverki sjóðsins, sbr. 1. gr. og:
- sem skila samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda,
- sem draga úr notkun jarðefnaeldsneytis,
- sem stuðla að framleiðslu og nýtingu á innlendum endurnýjanlegum orkugjöfum og orkunýtni,
- sem stuðla að hringrásarhagkerfi,
- sem stuðla að bættu orkuöryggi og
- sem hagnýta gögn um áhrif loftslagsbreytinga.
Ráðherra getur ákveðið frekari áherslur við styrk- og lánveitingar á grundvelli markmiða stjórnvalda. Ráðherra getur jafnframt ákveðið hámarkshlutföll styrkja vegna einstakra úthlutana, með hliðsjón af eðli verkefna, markmiðum viðkomandi úthlutunar og fjárhagsstöðu sjóðsins. Gera skal grein fyrir slíkum áherslum og hámarkshlutföllum í leiðbeiningum sem fylgja viðkomandi auglýsingu.
Að jafnaði skal styrkjum úthlutað til afmarkaðra verkefna til eins árs en í sérstökum tilfellum, eðli verkefnis samkvæmt, til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum hverju sinni og fjárhagsstöðu sjóðsins.
Eftirfarandi verkefni og kostnaður eru ekki hæf til styrk- eða lánveitingar:
- Verkefni sem eru á fjárlögum eða falla undir sérstaka samninga eða falla undir lögbundin hlutverk A-hluta stofnana eða sveitarfélaga.
- Kostnaður vegna reksturs félaga og félagasamtaka.
- Verkefni sem tengjast förgun úrgangs.
- Rannsóknarverkefni á meistara- eða doktorsstigi.
- Kostnaður vegna launa nefndarmanns eða annar kostnaður vegna nefndarsetu.
- Verkefni eða hluti verkefnis sem hefur þegar verið unninn.
9. gr. Auglýsingar og umsóknir.
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr samkeppnishluta sjóðsins, að jafnaði tvisvar á ári, sbr. 3. gr. Eftir umsóknum um lán skal auglýst eftir því sem tilefni er til. Auglýsa skal á vef Umhverfis- og orkustofnunar, í dagblöðum eða með öðrum sambærilegum hætti.
Í auglýsingu og leiðbeiningum sem tengjast auglýsingunni skulu koma fram upplýsingar um gögn sem skila þarf með umsókninni, helstu atriði sem litið er til við mat á umsóknum, sbr. reglugerð þessa, tímafresti og leiðbeiningar um hvar og hvernig skuli sækja um og hvenær umsóknir verði afgreiddar.
Umsókn skal skilað í rafrænu umsóknarkerfi á þar til gerðu umsóknareyðublaði. Umsókn skal fela í sér greinargóða lýsingu á verkefninu, markmiði þess, hvernig árangur þess verði metinn, áætluðum ávinningi af verkefninu, fjárhagsáætlun og hvernig umsækjandi hyggst ráðstafa þeim fjármunum sem sótt er um.
Umsókn skulu m.a. fylgja gögn og upplýsingar sem skilgreind eru nánar í leiðbeiningum fyrir hverja auglýsingu.
10. gr. Matsferli.
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs metur hæfi umsókna um styrki og lán og forgangsraðar þeim með hliðsjón af mati ráðgefandi fagráðs og ákvæðum reglugerðar þessarar.
Auk skilyrða sem fram koma í 8. gr. verður við mat á umsóknum og ákvörðun um úthlutun tekið tillit til þess hversu vel verkefni fellur að áherslum viðkomandi úthlutunar eins og þær eru skilgreindar í auglýsingu hverju sinni.
Umsækjendur mega ekki hafa samband við stjórn eða ráðgefandi fagráð meðan á matsferli stendur. Hafi umsækjandi samband við stjórn eða fagráð á tíma matsferils með það fyrir augum að hafa áhrif á niðurstöðu matsins mun umsóknin verða tekin úr matsferli. Umsóknum sem berast eftir tilskilinn tímafrest og/eða er skilað án allra umbeðinna gagna er hafnað.
11. gr. Fagráð.
Í þeim tilfellum sem umsýsla verkefnis er á hendi Umhverfis- og orkustofnunar skal stjórn Loftslags- og orkusjóðs skipa fagráð til að meta hversu vel verkefni fellur að áherslum viðkomandi úthlutunar og ákvæðum reglugerðar þessarar.
Fagráðið skal skipað eigi færri en þremur sérfræðingum sem saman fara með þekkingu á viðfangsefni styrkveitingarinnar.
Stjórn skal gefa út verklagsreglur og hæfisreglur fyrir fagráðið.
Hafi umsýsla verið framseld til óháðs aðila er stjórn heimilt að útvista skipan fagráðsins til þess aðila.
Fagráðið skilar stjórn Loftslags- og orkusjóðs skriflegri greinargerð þar sem fram kemur tillaga um forgangsröðun umsókna á grunni faglegs mats. Mat fagráðs á umsóknum skal ávallt byggjast á gæðum umsókna, áherslum styrkveitinga eins og þær eru skilgreindar í leiðbeiningum, ákvæðum reglugerðar þessarar og verklagsreglum fagráðs.
12. gr. Úthlutun og skilmálar.
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs tekur ákvörðun um styrkveitingar á grundvelli mats á framkomnum umsóknum með hliðsjón af tillögu í greinargerð fagráðs um forgangsröðun. Skila skal ráðherra skýrslu um ákvörðun stjórnar innan fimm virkra daga frá ákvörðun um styrkveitingu. Í framhaldi skal tilkynna öllum umsækjendum um afgreiðslu umsóknar og sérhverju svari skal fylgja stutt umsögn fagráðs. Við ákvörðun um styrkveitingar skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða, sbr. 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Ákvarðanir sem teknar eru um veitingu styrkja úr Loftslags- og orkusjóði eru endanlegar á stjórnsýslustigi.
Styrkþegi ábyrgist að styrk verði einungis varið til þess verkefnis sem getið er um í umsókn. Jafnframt skuldbindur hann sig til að skila greinargerð um framvindu verkefnisins og fjárhagsuppgjöri líkt og kveðið er á um í leiðbeiningum tengdum hverri auglýsingu. Styrkþegi skal auk þess hlíta öðrum þeim skilmálum sem fram koma í reglugerð þessari eða eru sérstaklega tilgreindir í samningi.
Styrkjum er úthlutað í samræmi við skilmála sem skilgreindir eru í leiðbeiningum hverju sinni. Almennt skal ekki gera samninga um styrki til lengri tíma en eins árs í senn. Ef verkefni er styrkt til lengri tíma en eins árs skal gerður um það samningur þar sem greiðslur vegna verkefnis skulu inntar af hendi eftir framgangi verkefnis eins og skilgreint er í leiðbeiningum hverju sinni en lokagreiðsla styrkfjár kemur almennt ekki til greiðslu fyrr en við skil til sjóðsins á gögnum sem gerð er krafa um hverju sinni.
Sjóðurinn áskilur sér rétt til að krefjast endurgreiðslu að hluta eða öllu leyti við verklok, sbr. 16. gr.
Loftslags- og orkusjóður birtir nöfn styrkþega, heiti verkefna og upphæð styrkja á vef Umhverfis- og orkustofnunar.
13. gr. Lánveitingar og skilmálar.
Loftslags- og orkusjóði er heimilt að veita lán til verkefna sem falla að hlutverki sjóðsins samkvæmt lögum nr. 76/2020 og reglugerð þessari. Stjórn sjóðsins gerir tillögu til ráðherra um lánveitingu á grundvelli mats á framkominni umsókn og fjárhagslegum forsendum verkefnis. Ráðherra tekur ákvörðun um lánveitingu. Við mat og ákvörðun um lánveitingar skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða, sbr. 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.
Áður en auglýst er eftir umsóknum um lán skulu helstu skilmálar lánveitinga skilgreindir í auglýsingu og leiðbeiningum vegna viðkomandi úthlutunar. Þar skal meðal annars kveðið á um hámarksfjárhæð eða hámarkshlutfall láns af kostnaði verkefnis, lánstíma, vexti eða viðmið við ákvörðun vaxta, fyrirkomulag útgreiðslu og afborgana, kröfur um tryggingar eftir því sem við á og önnur útlánakjör.
Vextir og önnur lánskjör skulu ákvörðuð á grundvelli hlutlægra og fyrir fram skilgreindra viðmiða, með hliðsjón af eðli verkefnis, áhættu, lánstíma og tryggingum.
Lántaki ábyrgist að láni verði einungis varið til þess verkefnis sem getið er um í umsókn. Jafnframt skal lántaki skila greinargerð um framvindu verkefnisins og fjárhagsuppgjöri eftir því sem nánar er kveðið á um í leiðbeiningum eða lánssamningi og hlíta öðrum þeim skilmálum sem fram koma í reglugerð þessari eða eru sérstaklega tilgreindir í lánssamningi.
Um hverja lánveitingu skal gerður skriflegur lánssamningur þar sem fram koma endanleg lánskjör innan þess ramma sem ákveðinn hefur verið samkvæmt þessari grein, þ.m.t. fjárhæð láns, vextir, lánstími, útgreiðsla og afborganir, tryggingar eftir því sem við á, upplýsingagjöf, eftirlit með framkvæmd verkefnis, vanefndir og önnur skilyrði lánveitingarinnar.
Ráðherra er, að fenginni tillögu stjórnar Loftslags- og orkusjóðs, heimilt að fella niður endurgreiðsluskyldu láns að hluta eða öllu leyti í samræmi við skilyrði viðkomandi lánveitingar. Skilyrði fyrir niðurfellingu endurgreiðsluskyldu og eftir atvikum hámark hennar skulu ákveðin áður en lán er veitt og koma fram í auglýsingu eða leiðbeiningum um viðkomandi lánveitingu og í lánssamningi. Við ákvörðun um niðurfellingu skal gæta jafnræðis og byggja á málefnalegum og fyrir fram skilgreindum sjónarmiðum.
14. gr. Upplýsingagjöf og skýrslur.
Styrk- og lánþega er skylt að skila sjóðnum framvindu- og/eða lokaskýrslum eins og þær eru skilgreindar í leiðbeiningum hverju sinni. Tilkynna skal sjóðnum tafarlaust ef upp koma aðstæður sem seinka verkefni sem hlotið hefur styrk eða lán eða koma í veg fyrir að markmiðum eða skilyrðum veitingar stuðnings sé fullnægt.
Styrk- og lánþega ber ávallt að verða við beiðni sjóðsins um upplýsingar um stöðu verkefnis og láta honum í té allar upplýsingar og gögn um verkefnið, þ.m.t. bókhaldsgögn.
Styrk- og lánþegi skal varðveita öll gögn verkefnisins, þ.m.t. bókhaldsgögn, í a.m.k. sjö ár og hafa þau tiltæk sé þess óskað af hálfu Ríkisendurskoðunar.
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs skilar ráðherra ársskýrslu þar sem fram kemur umfjöllun um styrkveitingar ársins og árangursmat á fyrri styrkjum.
15. gr. Kynningarefni tengt verkefni.
Á öllu útgefnu efni, auglýsingum o.s.frv. sem tengist hinu styrkta verkefni skal koma fram að það sé styrkt af Loftslags- og orkusjóði.
16. gr. Endurkröfuréttur Loftslags- og orkusjóðs.
Ef styrknum eða hluta hans er varið í annað en það verkefni sem tilgreint er í umsókn eða ef skilmálar í reglugerð þessari eða leiðbeiningum eru ekki uppfylltir teljast forsendur styrkveitingar brostnar. Áskilur Loftslags- og orkusjóður sér þá rétt til að ógilda styrkveitinguna og krefja styrkþega um endurgreiðslu á greiddum styrk, að hluta til eða í heild sinni, ásamt kostnaði.
Reynist útgjöld vegna verkefnis samkvæmt umsókn lægri en útborguð styrkfjárhæð skal styrkþegi endurgreiða ónýttan styrk innan 30 daga frá því fjárhagsuppgjör verkefnis liggur fyrir. Að öðrum kosti innheimtir sjóðurinn ónýttan styrk ásamt innheimtukostnaði.
Styrkjum er úthlutað til eins árs í senn. Nýti styrkþegi ekki styrk innan árs frá undirskrift samnings fellur styrkurinn niður, nema sérstaklega sé sótt um frestun hans. Umsókn þess efnis skal vera skrifleg og rökstudd. Sé verkefni þess eðlis að það þurfi styrki til lengri tíma, sbr. 4. mgr. 8. gr., skal við úthlutun styrks gera tímasetta áætlun um styrkúthlutun.
Þegar samningur um styrk er felldur niður vegna vanefnda eða þegar samningur um styrkveitingu er ekki gerður þá fellur sú úthlutun niður. Það sama gildir þegar styrkhafi er krafinn um endurgreiðslu þegar greidds styrks.
17. gr. Styrkhlutföll og fjárhæðir.
Styrkhlutföll og fjárhæðir í úthlutunum stjórnar Loftslags- og orkusjóðs skulu skilgreindar í auglýsingum og leiðbeiningum hverju sinni. Skal þar gerð grein fyrir hámarks styrkhlutföllum og hámarks styrkfjárhæðum sem og hlutfalli framvindugreiðslna. Sjóðnum er almennt ekki heimilt að veita hærri styrki en sem nemur 50% af heildarkostnaði verkefnis nema annað sé skilgreint í áherslum ráðherra, sbr. 3. mgr. 8. gr.
III. KAFLI Beinar stuðningsaðgerðir.
18. gr. Styrkir til hreinorkuökutækja.
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs veitir styrki vegna kaupa á ökutækjum sem hafa engan útblástur, eru hreinorkutæki eða losunarfrí ökutæki og við veitingu þeirra fer samkvæmt reglugerð þessari. Styrkveitingum þessum er ætlað að hvetja til kaupa á ökutækjum sem ganga fyrir hreinni endurnýjanlegri orku í þeim tilgangi að hraða orkuskiptum í samgöngum með það að meginmarkmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs getur ákveðið frekari skilyrði eða áherslur við styrkveitingar vegna ökutækja á grundvelli markmiða stjórnvalda og hlutverks sjóðsins, og skal gerð grein fyrir þeim í leiðbeiningum tengdum hverri auglýsingu.
19. gr. Styrkhæfi og skilmálar.
Styrkirnir eru veittir til einstaklinga og lögaðila sem eru skráðir sem eigendur styrkhæfra ökutækja hér á landi hjá Samgöngustofu.
Til styrkhæfra ökutækja teljast ökutæki með fyrstu skráningu á Íslandi. Ökutæki sem hafa verið fyrst skráð erlendis, en eru nýskráð á Íslandi innan 12 mánaða frá fyrstu skráningu erlendis, geta fengið að hámarki 80% af þeim styrk sem veittur er fyrir ökutæki með fyrstu skráningu á Íslandi. Ökutæki sem eru nýskráð hér á landi meira en 12 mánuðum eftir fyrstu skráningu erlendis eru ekki styrkhæf. Nánari upplýsingar um fjárhæðir tengdar styrkjum vegna kaupa á styrkhæfum ökutækjum má sjá í töflu um styrkfjárhæðir og hlutföll í 23. gr. þessarar reglugerðar. Sé kaupverðmæti umfram hámarkið er ökutæki ekki styrkhæft.
Sé ekki sótt um styrk innan 12 mánaða frá nýskráningu ökutækis fellur styrkhæfi ökutækisins niður. Til nýrra ökutækja teljast þau er fá fyrstu skráningu hér á landi.
Á þessum reglum eru undantekningar fyrir ökutæki í flokkum M1 og N1 ef ökutæki er sérbúið fyrir þarfir fólks með fötlun.
20. gr. Auglýsingar og umsóknir.
Stjórn Loftslags- og orkusjóðs skal auglýsa hvenær og hvernig verður opið fyrir umsóknir um hreinorkuökutækjastyrki. Í auglýsingu skulu koma fram upplýsingar um þau skilyrði sem ökutæki þurfa að uppfylla til að standast styrkhæfni, sbr. reglugerð þessa, og leiðbeiningar um hver og hvernig skuli sækja um.
Umsóknir um hreinorkuökutækjastyrki skulu almennt vera opnar allt árið en stjórn Loftslags- og orkusjóðs getur lokað fyrir umsóknir um styrki ef eftirspurn eftir styrkjum er umfram fjárhagsáætlun og fyrirséð er að fjárheimild ársins sé lægri en vænt útgreiðsla á ársgrundvelli.
21. gr. Umsóknir og útborgun styrkja.
Umsóknir vegna kaupa á fólksbílum í flokki M1 og atvinnubíla í flokki N1 fer alla jafna fram með stafrænum hætti í gegnum rafrænan aðgang umsækjanda á Ísland.is. Vegna bíla í sömu flokkum sem eru sérútbúnir vegna fötlunar kaupanda þarf að liggja fyrir staðfesting Tryggingastofnunar ríkisins (TR) áður en sótt er um á Ísland.is.
Hvað varðar styrkveitingar til ökutækja í flokkum M2, M3, N2 og N3 verður framkvæmd þeirra í gegnum umsóknarferli Loftslags- og orkusjóðs. Umsækjanda er heimilt að skila inn umboði eiganda þar sem ráðstöfun styrks er heimiluð á bankareikning annars lögaðila.
Frá og með 1. janúar 2027 fara umsóknir vegna vörubifreiða í flokki N2 undir 7 tonnum (3,5–7 tonn) einnig fram með stafrænum hætti í gegnum rafrænan aðgang umsækjanda á Ísland.is, með sama hætti og gildir um ökutæki í flokkum M1 og N1.
Styrkur er aðeins veittur einu sinni vegna hvers styrkhæfs ökutækis. Séu meðeigendur skráðir á hið styrkhæfa ökutæki greiðist styrkur til skráðs aðaleiganda og getur hann einn sótt um styrk.
Uppfylli bæði ökutæki og umsækjandi öll skilyrði og umsækjandi hefur gengist við þeim skilmálum sem liggja til grundvallar styrkveitingu og fram koma í umsóknarferli er styrkur greiddur út innan tveggja daga að jafnaði eftir að umsókn berst.
22. gr. Endurkröfuréttur.
Verði umsækjandi uppvís að því að veita rangar eða villandi upplýsingar til Loftslags- og orkusjóðs vegna umsóknar sinnar eða notar styrk í öðrum tilgangi en til kaupa á hreinorkuökutæki áskilur sjóðurinn sér rétt til að ógilda styrkveitinguna og krefja styrkþega um endurgreiðslu styrks ásamt kostnaði. Við ákvörðun um endurkröfu skal taka mið af eðli og umfangi atvika máls sem varðar endurkröfu.
Vakni rökstuddur grunur um refsiverða háttsemi í tengslum við umsókn eða styrkveitingu skal sjóðurinn leggja mat á hvort tilefni sé til að vísa málinu til lögreglu.
Styrkþega er ekki heimilt að selja ökutæki úr landi innan þriggja ára frá veittum styrk og áskilur sjóðurinn sér rétt til að krefja styrkþega um endurgreiðslu í þeim tilfellum. Í þessu sambandi áskilur Loftslags- og orkusjóður sér rétt til þess að kalla eftir upplýsingum um kaup, skráningu og eigendasögu þeirra ökutækja sem styrkt hafa verið. Enn fremur er upplýst að Ríkisendurskoðun hefur víðtækar skoðunarheimildir sem fela í sér heimild til að kalla eftir gögnum og upplýsingum í þessu sambandi. Sjóðurinn áskilur sér þá rétt til að ógilda styrkveitinguna og krefja styrkþega um endurgreiðslu styrks ásamt kostnaði.
23. gr. Styrkfjárhæðir og hlutföll.
Eftirfarandi skulu vera hámarks styrkhlutföll og styrkfjárhæðir í úthlutunum stjórnar Loftslags- og orkusjóðs til fólksbíla sem taka að hámarki átta farþega (M1):
| Fólksbílar – nýir | 2026 | 2027 | 2028 | Hlutföll |
| Söluverð < 8.000.000 kr. | 400.000 kr. | 400.000 kr. | 0 kr. | Á ekki við |
| Söluverð > 8.000.000 kr. | 0 kr. | 0 kr. | 0 kr. | Á ekki við |
Eftirfarandi skulu vera hámarks styrkhlutföll og styrkfjárhæðir í úthlutunum stjórnar Loftslags- og orkusjóðs til vöru- og sendibíla sem notaðir eru í atvinnuskyni. Eingöngu eru veittir styrkir til lögaðila eða einstaklinga í virkum atvinnurekstri:
| Atvinnubílar | 2026 | 2027 | 2028 | Hlutföll |
| Sendibílar (N1), söluverð < 10 m.kr. | 500.000 kr. | 500.000 kr. | 0 kr. | Á ekki við |
| Lítil vörubifreið (N2) 3,5-7 tonn | 2.500.000 kr. | 500.000 kr. | 0 kr. | 33% |
| Lítil vörubifreið (N2) 7-12 tonn | 5.000.000 kr. | 2.500.000 kr. | 2.500.000 kr. | 33% |
| Vörubifreið II (N3) 12-18 tonn | 10.000.000 kr. | 10.000.000 kr. | 10.000.000 kr. | 33% |
| Vörubifreið II (N3) 18-26 tonn | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 33% |
| Vörubifreið II (N3) > 26 tonn | 20.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 33% |
Eftirfarandi skulu vera hámarks styrkhlutföll og styrkfjárhæðir í úthlutunum stjórnar Loftslags- og orkusjóðs til hópferðabíla sem notaðir eru í atvinnuskyni. Eingöngu eru veittir styrkir til lögaðila eða einstaklinga í virkum atvinnurekstri:
| Hópferðabílar | 2026 | 2027 | 2028 | Hlutföll |
| M2 (10 farþegar +) < 5 tonn | 5.000.000 kr. | 2.500.000 kr. | 2.500.000 kr. | 33% |
| M3 (10 farþegar +) > 5 tonn | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 15.000.000 kr. | 33% |
| M3 almenningsvagnar/strætó | 30.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 20.000.000 kr. | 33% |
Í tilfelli fólksbíla (M1), sendibíla (N1), lítilla vörubifreiða (N2) og lítilla hópferðabíla (M2) er miðað við dagsetningu samþykktrar umsóknar að lokinni nýskráningu. Í tilfelli vöru- og hópferðabifreiða (N3, M3) er miðað við dagsetningu bindandi kauptilboðs fyrir samþykkt styrks en greiðsla styrks kemur til við nýskráningu hjá Samgöngustofu.
Fjöldi styrkveitinga Loftslags- og orkusjóðs til hreinorkuökutækja í flokkum M3/N3 takmarkast af því sem nemur ígildi 150 ökutækjaeininga frá 1. janúar 2026. Einingafjöldi vegna vöru- og hópferðabifreiða er skilgreindur með eftirfarandi hætti:
A-flokkur: Vörubifreið II (N3) 12-18 tonn: 0,5 einingar.
B-flokkur: Vörubifreið II (N3) 18-26 tonn og hópferðabílar (M3) > 5 tonn og 10 farþega: 1 eining.
C-flokkur: Vörubifreið II (N3) > 26 tonn og (M3) almenningsvagnar/strætó: 1,5 einingar.
IV. KAFLI Ýmis ákvæði.
24. gr. Skráningarskylda styrkja samkvæmt reglum Evrópusambandsins.
Sjóðurinn skal gæta þess að umsóknir uppfylli skilyrði ákvæða reglugerðar (ESB) 651/2014 um almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu, þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans.
Óheimilt er að styrkja fyrirtæki í samkeppnisrekstri umfram þá hámarksfjárhæð sem leyfileg er samkvæmt reglugerð (ESB) 2023/2831 um minniháttaraðstoð (de minimis regla), nú að hámarki 300.000 evrur á hverju 36 mánaða tímabili að frádregnum öðrum styrkjum frá opinberum sjóðum sem viðkomandi hefur fengið til sömu verkefna á sama tímabili. Sjóðurinn skal skrá alla minniháttaraðstoð sem veitt er í miðlæga skrá framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
25. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga um Loftslags- og orkusjóð, nr. 76/2020, öðlast gildi 1. nóvember 2026. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð um Loftslags- og orkusjóð, nr. 1566/2024.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 12. október 2026.
Jóhann Páll Jóhannsson.
Stefán Guðmundsson.
B deild — Útgáfudagur: 13. október 2026