Forskilyrði er að búið sé að sækja um og fá úthlutað listabókstaf hjá Dómsmálaráðuneytinu.
Ef framboð eru skráð sem fyrirtæki og hafa fyrirtækjakennitölur þá eru það skráðir prókúruhafar þeirra kennitala sem geta stofnað meðmælasafnanir fyrir það framboð.
Ef framboð er stofnað á kennitölu einstaklings þá er sá hinn sami prókúruhafi og getur stofnað meðmælasöfnun á sína kennitölu.
Prókúruhafi/ar framboðs geta farið inn á island.is og valið „aðgangsstýringar“ og gefið öðrum einstaklingum umboð til að sýsla með meðmælasöfnun fyrir hönd þeirra.
Dæmi um aðgerðir er að fylgjast með framgangi söfnunar, slá inn kennitölur meðmælenda sem safnað er á pappír.
Framboð hafa aðgang að virkni í meðmælakerfinu, í gegnum Mínar síður á island.is, til að slá inn kennitölu meðmælenda sem safnað hefur verið á pappír.
Mælt er með að framboðin slái inn þær kennitölur sem safnað er á pappír með reglulegu millibili í kerfið, þar sem kerfið staðfestir réttmæti meðmælenda jafnóðum. Þannig geta framboðin séð réttari stöðu á fjölda meðmæla sem hafa safnast.
Athugið að framboð verða að skila inn frumeintökum úr meðmælasöfnunum á pappír til Landskjörstjórnar þegar framboðum er skilað inn.
Ef ekki er hægt að slá inn kennitölu meðmælanda af blaði hefur sá meðmælandi ekki heimild til að mæla með framboðum í því kjördæmi.
Þjónustuaðili
Þjóðskrá