Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Rannís

Upplýsingar um starf

Starf

Alþjóðlegt menntasamstarf

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.10.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026

Alþjóðlegt menntasamstarf

Hefur þú áhuga á menntamálum og vilt stuðla að árangursríku evrópsku og norrænu menntasamstarfi? Rannís óskar eftir sérfræðingi í fullt starf á mennta- og menningarsvið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða umsjón með eTwinning, rafrænu skólasamfélagi sem stuðlar að samstarfi milli íslenskra og evrópskra kennara og skólafólks og Nordplus Junior sem er skólahluti Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar. Starfið felur í sér umsýslu umsókna og verkefna, gerð vinnuáætlana og skýrslna auk þátttöku í kynningarmálum og alþjóðlegu samstarfi.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Þekking á íslensku menntaumhverfi og reynsla af starfi í menntageiranum

  • Mjög góð íslenskukunnátta og færni í að tjá sig í ræðu og riti

  • Mjög góð færni í ensku, töluðu og rituðu máli

  • Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur

  • Mjög góð færni í notkun upplýsingatækni

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Framúrskarandi samstarfshæfni og samskiptafærni

  • Reynsla af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, verkefnastjórnun og kynningastarfi er kostur

  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026

Nánari upplýsingar á heimasíðu Rannís, www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/. Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini.

Umsækjendum er bent á að kynna sér starfsemi Rannís og sérstaklega eTwinning og Nordplus á heimasíðu Rannís.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Við ráðningu í starfið er tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Rannís er líflegur vinnustaður með um 70 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Aðalheiður Jónsdóttir

Sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs

Tölvupóstur: adalheidur.jonsdottir@rannis.is

Sími: 515 5806

Þjónustuaðili

Rannís

Upplýsingar um starf

Starf

Alþjóðlegt menntasamstarf

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.10.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026