Prentað þann 20. des. 2025
1670/2024
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 543/2024 um áburðarvörur.
1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Svo hægt sé að tryggja nægilegt framboð á tilbúnum áburði fyrir árið 2025 skal, þrátt fyrir ákvæði 3. gr. reglugerðar þessarar, vera heimilt til ársloka 2025 að flytja inn og nota hérlendis ólífrænan áburð, sem inniheldur fosfór og inniheldur kadmíum að hámarki 136 mg Cd/kg P eða 60 mg Cd/kg P2O5. Leggja skal fram staðfestingu á kadmíuminnihaldi skv. ákvæðum 3. gr. og önnur skilyrði reglugerðarinnar standa óbreytt.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 17. desember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Kolbeinn Árnason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.