Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. mars 2022

1669/2021

Reglugerð um skyldu flugrekenda til að kanna vottorð vegna COVID-19 í millilandaflugi.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um alla flugrekendur/umráðendur loftfara og farþega með loftförum í millilandaflugi til íslensks yfirráðasvæðis, að undanskildum loftförum í yfirflugi, loftförum í flutningaflugi með farm, loftförum í neyð og loftförum sem eiga viðkomu án þess að farþegar fari frá borði.

2. gr. Skyldur flugrekanda/umráðanda loftfars.

Öllum flugrekendum/umráðendum loftfara er skylt að kanna hvort farþegi hafi fullnægt skyldu til forskráningar og hafi tilskilið viðurkennt vottorð um ónæmisaðgerð gegn COVID-19 (SARS-CoV-2), vottorð um að COVID-19 (SARS-CoV-2) sýking sé afstaðin eða vottorð eða staðfestingu á neikvæðri niðurstöðu prófs á COVID-19 (SARS-CoV-2) áður en farið er um borð í loftfar, enda hafi slík skylda verið lögð á farþega á grundvelli sóttvarnalaga, sbr. reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19, eins og hún er á hverjum tíma. Skyldur flugrekenda/umráðenda loftfara til að kanna hvort farþegi hafi framangreind vottorð eða staðfestingu nær aðeins til þess að staðreyna nafn farþega á vottorði eða staðfestingu og gildis- og útgáfutíma skjals, ef við á, og kanna hvort vottorð eða staðfesting beri með sér yfirbragð þess að vera vottorð eða staðfesting í samræmi við fyrirmæli heilbrigðisyfirvalda.

Geti farþegi ekki framvísað vottorði eða staðfestingu skv. 1. mgr. ber flugrekanda/umráðanda loftfars að tilkynna löggæsluyfirvöldum hér á landi um komu viðkomandi farþega. Nafn farþega, vegabréfsnúmer og flugnúmer skal tilkynna löggæsluyfirvöldum eins fljótt og auðið er og eigi seinna en áætlað er að flug viðkomandi lendi á íslenskum flugvelli.

Flugrekanda/umráðanda loftfars ber jafnframt að upplýsa farþega sem ekki getur framvísað vottorði eða staðfestingu skv. 1. mgr. um hvaða afleiðingar það kunni að hafa við komuna til landsins.

3. gr. Stjórnvaldssekt.

Samgöngustofa getur lagt stjórnvaldssekt á flugrekanda/umráðanda loftfars eins og hér segir:

  1. Brot gegn skyldu til að kanna hvort farþegi hafi tilskilið vottorð eða staðfestingu skv. 1. mgr. 2. gr. varðar stjórnvaldssekt kr. 200.000 fyrir hvert brot vegna sérhvers farþega.
  2. Brot gegn skyldu til að tilkynna löggæsluyfirvöldum um farþega sem ferðast án tilskilins vottorðs eða staðfestingar skv. 2. mgr. 2. gr. varðar stjórnvaldssekt kr. 200.000 fyrir hvert brot vegna sérhvers farþega.
  3. Brot gegn skyldu til að upplýsa farþega um afleiðingar þess ef farþegi hefur ekki forskráð sig eða framvísað vottorði eða staðfestingu skv. 3. mgr. 2. gr. varðar stjórnvaldssekt kr. 200.000 fyrir hvert brot vegna sérhvers farþega.

Ákvörðun um stjórnvaldssekt skal tilkynnt á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að.

Gera má lögaðila sekt fyrir brot gegn 2. gr. óháð því hvort sök verði sönnuð á tiltekið fyrirsvarsfólk lögaðilans, starfsfólk hans eða annan aðila sem starfar á vegum hans.

Gjalddagi stjórnvaldssektar er 30 dögum eftir dagsetningu ákvörðunar. Greiða skal dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar sé hún ógreidd 15 dögum eftir gjalddaga. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu.

Ákvarðanir Samgöngustofu um að leggja á stjórnvaldssekt eru aðfararhæfar að liðnum kærufresti. Málskot til ráðherra frestar aðför en úrskurðir ráðherra eru aðfararhæfir. Málshöfðun fyrir almennum dómstólum frestar ekki aðför og er ekki háð því að mál hafi áður verið kært til ráðherra.

4. gr. Viðurlög.

Ítrekuð eða stórfelld brot gegn 2. gr. varða refsingu skv. 1. mgr. 141. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Gera má lögaðila sekt samkvæmt ákvæðum II. kafla A almennra hegningarlaga fyrir slík brot. Brot samkvæmt ákvæði þessu sæta aðeins rannsókn lögreglu að undangenginni kæru Samgöngustofu.

5. gr. Kæra.

Ákvörðun um stjórnvaldssekt má skjóta til ráðherra samkvæmt stjórnsýslulögum.

6. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í bráðabirgðaákvæði V við lög um loftferðir, nr. 60/1998, sbr. lög nr. 41/2021 og nr. 135/2021, sbr. einnig 2. mgr. 1. gr. og 145. gr. laga um loftferðir, með síðari breytingum, og tekur gildi frá og með 1. janúar 2022 kl. 00.00 að alþjóðlegum staðaltíma (UTC) og gildir til 30. júní 2022 kl. 23.59 að alþjóðlegum staðaltíma (UTC). Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð um skyldu flugrekenda til að kanna vottorð vegna COVID-19 í millilandaflugi, nr. 650/2021, með síðari breytingum.

Ef ákvæðum reglugerðar þessarar lýstur saman við ákvæði reglugerðar um flugvirkt, nr. 1025/2012, skulu ákvæði reglugerðar þessarar ganga framar.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. desember 2021.

F. h. innviðaráðherra,

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.