Prentað þann 21. nóv. 2024
1510/2022
Reglugerð um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.
1. gr.
Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 137.632 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 190.747 kr. á mánuði.
2. gr.
Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021:
- Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 83.233 kr. á mánuði.
- Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 190.747 kr. á mánuði.
3. gr.
Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 143.963 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.
4. gr.
Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022:
- Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 87.062 kr. á mánuði.
- Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.
5. gr.
Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2023 eða síðar:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 152.025 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 210.695 kr. á mánuði.
6. gr.
Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, til foreldra skulu vera sem hér segir vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2023 eða síðar:
- Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 91.937 kr. á mánuði.
- Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 210.695 kr. á mánuði.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 54. gr. laga nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 1658/2021 um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof og reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 21. desember 2022.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Bjarnheiður Gautadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.