Prentað þann 14. mars 2026
1493/2025
Reglugerð um fjárhæðir greiðslna í sorgarleyfi og greiðslu sorgarstyrks.
1. gr.
Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 16. gr. laga um sorgarleyfi skal nema 207.708 kr. á mánuði.
Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 16. gr. laga um sorgarleyfi skal nema 275.688 kr. á mánuði.
2. gr.
Sorgarstyrkur samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga um sorgarleyfi skal nema 138.086 kr. á mánuði.
Sorgarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga um sorgarleyfi skal nema 275.688 kr. á mánuði.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 33. gr. laga nr. 77/2022, um sorgarleyfi, gildir frá og með 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 762/2025 um fjárhæðir greiðslna í sorgarleyfi og greiðslu sorgarstyrks.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.
Inga Sæland.
Ásgeir Runólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.