Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 2. apríl 2025

Stofnreglugerð

1484/2024

Reglugerð um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2024.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til þeirra sem fá greiddar maka- eða umönnunarbætur á árinu 2024.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

2. gr. Desemberuppbót.

Einstaklingur sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skv. 5. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2024 skal fá greidda desemberuppbót að fjárhæð 63.558 kr. enda hafi greiðsluþegi fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2024.

Greiðsluþegi sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skemur en tólf mánuði á árinu 2024 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur fengið greiðslur á árinu. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 63. gr., sbr. 62. gr., laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og 2. mgr. 14. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1420/2023, um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2023.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

Bjarni Benediktsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.