Prentað þann 18. des. 2025
1266/2025
Reglugerð um desemberuppbætur til þeirra sem fá greiddar maka- eða umönnunarbætur á árinu 2025.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur í desember 2025 til þeirra sem hafa fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur á árinu 2025.
Tryggingastofnun annast framkvæmd reglugerðarinnar.
2. gr. Desemberuppbætur.
Einstaklingur sem hefur á árinu 2025 fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skv. 5. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, á rétt á desemberuppbót að fjárhæð 66.291 kr., enda hafi viðkomandi fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2025.
Einstaklingur sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skv. 5. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, skemur en tólf mánuði á árinu 2025 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur fengið greiðslur á árinu. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.
3. gr. Útgreiðsla.
Tryggingastofnun skal greiða út desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari eigi síðar en 15. desember 2025.
4. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 14. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1484/2024, um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2024.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 24. nóvember 2025.
Inga Sæland.
Ásgeir Runólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 28. nóvember 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.