Prentað þann 2. apríl 2025
1451/2024
Reglugerð um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.
1. gr.
Hámarksábyrgð á kröfum launafólks skv. a- og b-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, sem gjaldfalla fyrir 1. apríl 2024, skal vera 633.000 kr. fyrir hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum um orlofslaun skv. c-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laganna, sem gjaldfalla fyrir 1. apríl 2024 skal vera 1.014.000 kr.
2. gr.
Hámarksábyrgð á kröfum launafólks skv. a- og b-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, sem gjaldfalla á tímabilinu frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024, skal vera 850.000 kr. fyrir hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum um orlofslaun skv. c-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laganna, sem gjaldfalla á tímabilinu frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024 skal vera 1.362.000 kr.
3. gr.
Hámarksábyrgð á kröfum launafólks skv. a- og b-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, sem gjaldfalla frá og með 1. janúar 2025, skal vera 970.000 kr. fyrir hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum um orlofslaun skv. c-lið 5. gr., sbr. einnig 6. gr. laganna, sem gjaldfalla frá og með 1. janúar 2025 skal vera 1.554.000 kr.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 377/2024, um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Bjarnheiður Gautadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.