Prentað þann 21. nóv. 2024
1413/2023
Reglugerð um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2024 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.
1. gr.
Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:
- Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 966.396 kr. á mánuði.
- Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 250.756 kr. á mánuði.
- Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. skal nema 250.756 kr. á mánuði.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr., laga nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, öðlast gildi 1. janúar 2024. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1434/2022, um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2023 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 18. desember 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.