Prentað þann 24. nóv. 2024
1289/2022
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1000/2005 um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir.
1. gr.
II. viðauki reglugerðarinnar breytist í samræmi við viðauka, sem er birtur á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 8/2022, með heimild í 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005 um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1226 frá 21. desember 2020 um að koma á sameiginlegum matsaðferðum fyrir hávaða samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, sem vísað er til í tölulið 32g XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2022, þann 4. febrúar 2022.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 23. nóvember 2022.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.