Prentað þann 25. nóv. 2024
1252/2023
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 205/2023 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2306 frá 21. október 2021 um að bæta við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 reglum um opinbert eftirlit að því er varðar sendingar af lífrænt ræktuðum vörum og vörum í aðlögun sem eru ætlaðar til innflutnings til Sambandsins og skoðunarvottorð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 40/2022, frá 4. febrúar 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 17. mars 2022, bls. 801.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2238 frá 22. ágúst 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/2306 að því er varðar umbreytingarákvæði vegna skoðunarvottorða og útdrátta úr þeim og að því er varðar umbreytingarákvæði vegna skoðunarvottorða sem eru gefin út í Úkraínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 295/2022, frá 9. desember 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 26. janúar 2023, bls. 98.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og II. kafla laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Emilía Madeleine Heenen.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.