Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 5. des. 2025

Breytingareglugerð

801/2025

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 172/2025 um innleiðingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (esb) 2021/2306 frá 21. október 2021 um að bæta við reglugerð evrópuþingsins og ráðsins (esb) 2018/848 reglum um opinbert eftirlit að því er varðar sendingar af lífrænt ræktuðum vörum og vörum í aðlögun sem eru ætlaðar til innflutnings til sambandsins og skoðunarvottorð.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirfarandi ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2238 frá 22. ágúst 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/2306 að því er varðar umbreytingarákvæði vegna skoðunarvottorða og útdrátta úr þeim og að því er varðar umbreytingarákvæði vegna skoðunarvottorða sem eru gefin út í Úkraínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 295/2022, frá 9. desember 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 26. janúar 2023, bls. 98.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2975 frá 25. september 2024 um breytingu á framseldum reglugerðum (ESB) 2021/1698 og (ESB) 2021/2306 að því er varðar innflutning til Sambandsins á áhættusömum lífrænt ræktuðum vörum og vörum í aðlögun. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2025, frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 30. apríl 2025, bls. 555.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995 og II. kafla laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995 og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur brott reglugerð nr. 1252/2023.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 8. júlí 2025.

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 15. júlí 2025

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.