Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 18. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 27. júní 2020
Sýnir breytingar gerðar 27. júní 2020 af rg.nr. 637/2020

1227/2019

Reglugerð um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2020.

1. gr.

Þinggjöld sem leggja skal á tekjur ársins 2019 og ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2020. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema í janúar og í þeim mánuði sem álagningu lýkur samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra. Eindagi er mánuði eftir gjalddaga, sbr. þó 2. mgr. 4. gr.

2. gr.

Þar til álagning ársins 2020 liggur fyrir skal hver gjaldandi greiða fyrirfram upp í álagningu ársins. Fyrirframgreiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 8,5% af þinggjöldum ársins 2019 og 8,5% af jöfnunargjaldi vegna alþjónustu sem greiða bar á árinu 2019. Við skiptingu fyrirframgreiðsluskyldu og eftirstöðva álagningar skal við það miðað að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 5.000 kr. á hverjum gjalddaga.

Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða í fyrirframgreiðslu eru tekjuskattur, sérstakur fjársýsluskattur sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki og jöfnunargjald alþjónustu.

Einstaklingar skulu fyrirframgreiða tekjuskatt, útsvar og jöfnunargjald alþjónustu eftir því sem kveðið er á um.

3. gr.

Árlegir gjalddagar eftirtalinna gjalda eru sem hér segir:

Gjalddagar einstaklinga vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. eru 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst. Gjalddagi vegna gjalds í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingar vegna heimilisstarfa, ógreidds fjársýsluskatts og ógreidds tryggingagjalds, sem ríkisskattstjóri ákvarðar vegna hlunninda, og fjársýsluskatts og tryggingagjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu skal vera einn, 1. júní.

Gjalddagi lögaðila vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf., ógreidds fjársýsluskatts og ógreidds tryggingagjalds, sem ríkisskattstjóri ákvarðar vegna hlunninda, og fjársýsluskatts og tryggingagjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu er 1. nóvember.

4. gr.

Hafi skattar, þ.e. fyrirframgreiðsla og álögð gjöld, ekki verið greiddir innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er frá gjalddaga.

Vanskil gjaldanda að hluta á álögðum sköttum og gjöldum valda því að allir skattar gjaldandans falla í eindaga mánuði eftir gjalddaga vangoldinnar greiðslu, en þó ekki fyrr en mánuði eftir að álagningu er lokið.

5. gr.

Heimilt er gjaldanda að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda, sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu ársins 2020 skv. 2. gr. Umsókn um slíka lækkun skal senda ríkisskattstjóra til ákvörðunar.

6. gr.

Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn gjaldanda, sbr. 5. gr., nema þeir skattstofnar sem um ræðir fyrir tekjuárið 2019 séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 2018. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati ríkisskattstjóra.

Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðsluskyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar.

7. gr.

Ákvörðun varðandi umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu skal ríkisskattstjóri tilkynna gjaldanda eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila. Ákvörðun ríkisskattstjóra skal vera endanleg á stjórnsýslustigi.

8. gr.

Um greiðslur þinggjalda á árinu 2020 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.

9. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112., 114. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, og 22. gr. laga nr. 81/2003, um fjarskipti, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir almenn ákvæði reglugerðar þessarar um skyldu til fyrirframgreiðslu, gjalddaga, sbr. ákvæði 4. gr., og umsóknir um breytingar á fyrirframgreiðslu er lögaðilum heimilt án umsóknar að ákveða hvort þeir greiði fyrirframgreiðslu tekjuskatts lögaðila, samkvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, upp í álagningu 2020 á gjalddögunum 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst og 1. júníseptember, en eindagi er mánuði eftir gjalddaga. Ákvæði þetta á ekki við um fyrirframgreiðslu sérstaks fjársýsluskatts, sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki og jöfnunargjalds alþjónustu.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.