Prentað þann 26. des. 2024
1209/2012
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1025/2008, um sjúkradagpeninga.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað fjárhæðarinnar "1.275 kr." kemur: 1.325 kr.
- Í stað fjárhæðarinnar "349 kr." kemur: 363 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2013. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1226/2011, um breytingu á reglugerð nr. 1025/2008, um sjúkradagpeninga.
Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2012.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.