Prentað þann 28. des. 2024
1195/2020
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.
1. gr.
Við 1. mgr. 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:
ú. | Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/111 frá 13. janúar 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar samþykki fyrir flugverndarbúnaði í almenningsflugi sem og fyrir þriðju lönd sem viðurkennt er að beiti flugverndarkröfum sem jafngilda sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almenningsflugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138 frá 25. september 2020, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 610. |
Liðir (1) (b) og (2) (b) að því er varðar Ísrael, Ben Gurion flugvöll, koma ekki til framkvæmda.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Á sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 114/2020 og nr. 279/2020 um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 26. nóvember 2020.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.