Prentað þann 22. des. 2024
1123/2023
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 637/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2236 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af lagardýrum og af tilteknum lagardýraafurðum og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð (dýraheilbrigði).
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/516 frá 8. mars 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2236 að því er varðar fyrirmynd að dýraheilbrigðisvottorði vegna komu sendinga af lagardýrum, sem eru ætlaðar fyrir tilteknar lagareldisstöðvar, til sleppingar út í náttúruna eða í öðrum tilgangi, inn í Sambandið, þó ekki til beinnar neyslu.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/516 sem nefnd er í 1. gr. er birt í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 10/2023.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 23. október 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Iðunn María Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.