Prentað þann 15. mars 2025
1071/2021
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 777/2021 um gildistöku á reglugerð (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir.
1. gr.
C-liður 2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Vottorð sem staðfestir, í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu NAAT-prófs sem framkvæmt er af fagfólki í heilbrigðisþjónustu eða starfsfólki sem hæft er til að framkvæma próf, að handhafi þess hafi náð bata eftir sýkingu af völdum SARS-CoV-2 (batavottorð).
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 23. september 2021.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Ásthildur Knútsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.