Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 18. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 30. okt. 2020 – 3. nóv. 2020 Sjá lokaútgáfu

1051/2020

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 31. október 2020 og gildir til og með 17. nóvember 2020.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara og skipa í millilandaferðum.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2015 eða síðar.

Reglugerð þessi tekur ekki til skólastarfs sem fjallað er um í sérstakri reglugerð um takmörkun skólastarfs.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en tíu einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem tónleika, menningarviðburða, leiksýninga, bíósýninga, íþróttaviðburða og einkasamkvæma.
  4. Kirkjuathafna hvers konar, svo sem vegna giftinga og ferminga, og annarra trúarsamkoma, sbr. þó 4. mgr.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en tíu einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en tíu einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er lyfja- og matvöruverslunum heimilt að hafa allt að 50 manns inni í einu að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 4. gr. Þá er lyfja- og matvöruverslunum sem eru yfir 1.000 m² að stærð heimilt að hleypa til viðbótar einum viðskiptavin inn fyrir hverja 10 m² umfram 1.000 m², þó að hámarki 100 viðskiptavinum alls.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er allt að 30 einstaklingum heimilt að vera viðstaddir útfarir. Um fjölda fólks við erfidrykkju fer eftir 1. mgr.

Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

Fjöldatakmörkun samkvæmt ákvæði þessu á ekki við um heimilisfólk á heimili sínu.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Andlitsgrímur skal nota í almenningssamgöngum, í verslunum og annarri þjónustu. Einnig skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun sem kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, leigubifreiðum og hópbifreiðum. Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu.

5. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar er óheimil, svo sem menningarstarfsemi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og önnur sambærileg starfsemi. Takmarkanir þessar taka ekki til starfsemi heilbrigðisstarfsmanna við veitingu heilbrigðisþjónustu en í þeim tilvikum er skylt að notast við andlitsgrímur. Ákvæði þetta tekur ekki til innanlandsflugs og -ferja, leigubifreiða, hópbifreiða og almenningssamgangna.

Skemmtistöðum og krám, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, og spilasölum skal lokað frá gildistöku reglugerðarinnar. Þá skulu aðrir veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00 alla daga vikunnar og fylgja ákvæðum 3. og 4. gr. Þó er heimilt að selja mat út úr húsi til kl. 23.00.

Í þeim tilvikum þar sem fleiri tegundir veitingastaða eru skráðar í rekstrarleyfi er heimilt að starfa áfram í samræmi við aðrar tegundir en kveðið er á um í 2. mgr. með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í reglugerð þessari.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 21.00.

Sund- og baðstöðum sem og líkamsræktarstöðvum skal lokað.

Íþróttir, þar með talið æfingar og keppnir, barna og fullorðinna hvort sem er innan- eða utandyra, með eða án snertingar eru óheimilar. Einstaklingsbundnar æfingar án snertingar eru heimilar, svo sem útihlaup og sambærileg hreyfing.

Sviðslistir, og sambærileg starfsemi, eru óheimilar.

6. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem varðandi heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum.

7. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá banni við íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppnisleikja hér á landi, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1015/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Heilbrigðisráðuneytinu, 30. október 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.