Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 31. okt. 2020

1015/2020

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 20. október 2020 og gildir til og með 10. nóvember 2020.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara og skipa í millilandaferðum.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.

Reglugerð þessi tekur ekki til skólastarfs sem fjallað er um í sérstakri reglugerð um takmörkun skólastarfs.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 20 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem tónleika, menningarviðburða, leiksýninga, bíósýninga, íþróttaviðburða og einkasamkvæma, sbr. þó 5. gr.
  4. Kirkjuathafna hvers konar, svo sem vegna giftinga og ferminga, og annarra trúarsamkoma, sbr. þó 4. mgr.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 20 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 20 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 4. gr. Þá er verslunum sem eru yfir 1.000 m² að stærð heimilt að hleypa til viðbótar einum viðskiptavin inn fyrir hverja 10 m² umfram 1.000 m², þó að hámarki 200 viðskiptavinum alls.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er allt að 50 einstaklingum heimilt að vera viðstaddir útfarir. Um fjölda fólks við erfidrykkju fer eftir 1. mgr.

Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun sem kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í verslunum, eða um er að ræða starfsemi sem eðlis síns vegna krefst meiri nálægðar en kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, á hárgreiðslustofum, nuddstofum, í innanlandsflugi og ‑ferjum, leigubifreiðum, hópbifreiðum og almenningssamgöngum, skal nota andlitsgrímu sem hylur nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu.

5. gr. Nálægðartakmörkun í íþróttum, sviðslistum o.fl.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 4. gr. um 2 metra nálægðartakmörkun eru snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands. Aftur á móti skal virða 2 metra nálægðartakmörkun í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Þrátt fyrir fjöldatakmarkanir skv. 3. gr. er allt að 50 einstaklingum heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum.

Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt gæta að nálægðartakmörkunum skv. 1. mgr. 4. gr.

Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum.

Keppnisáhöld skulu sótthreinsuð eftir hverja notkun eins og kostur er með hliðsjón af eðli íþróttarinnar.

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklingsbundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni.

Íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi, önnur en sú sem fellur undir 1. mgr., sem krefst nándar, snertingar eða notkunar gólf-, loft- eða veggfasts sameiginlegs búnaðar og stórra tækja, svo sem í tækjasölum heilsuræktarstöðva, er óheimil. Notkun á öðrum sameiginlegum búnaði, svo sem handlóðum, hjólum eða dýnum, er heimil ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir. Búnaður skal ekki fara á milli notenda í sama hóptíma og skal sótthreinsaður fyrir og eftir æfingu. Í húsnæði þar sem slík starfsemi fer fram gildir ákvæði 1. mgr. 3. gr. um fjöldatakmörkun.

Með sama hætti og í íþróttum á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands eru snertingar og nálægð undir 2 metra heimil í sviðslistum, tónlist, við kvikmyndatöku og sambærilegri starfsemi. Þar sem sérstök smithætta er fyrir hendi, svo sem á kóræfingum, skal þó eftir fremsta megni gætt að ákvæði 1. mgr. 4. gr. og eftir atvikum viðhöfð meiri fjarlægð, ef það er unnt. Þrátt fyrir fjöldatakmarkanir skv. 3. gr. er heimilt að hafa allt að 50 einstaklinga á sviði og 20 gesti í hverju rými á viðburðum, sbr. þó 3. mgr., að því gefnu að allir gestir sitji í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn. Gestir skulu nota andlitsgrímur sem uppfylla kröfur 2. mgr. 4. gr. og eru í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis.

Keppnisviðburðir barna, fæddra 2005 og síðar, þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar, skulu ekki fara fram.

6. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Skemmtistöðum og krám, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, og spilasölum skal lokað frá gildistöku reglugerðarinnar. Þá skulu aðrir veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar ekki hafa opið lengur en til kl. 23.00 alla daga vikunnar og fylgja ákvæðum 3. og 4. gr.

Í þeim tilvikum þar sem fleiri tegundir veitingastaða eru skráðar í rekstrarleyfi er heimilt að starfa áfram í samræmi við aðrar tegundir en kveðið er á um í 1. mgr. með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í reglugerð þessari.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 23.00.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun má gestafjöldi á sund- og baðstöðum aldrei vera meiri en helmingur af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við helming þess fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Börn fædd árið 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

7. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem varðandi heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum.

8. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

9. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða. Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

10. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 957/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingu.

Ákvæði til bráðabirgða.

Til viðbótar við ákvæði reglugerðar þessarar skulu til og með 3. nóvember 2020 gilda eftirfarandi takmarkanir í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ:

  1. Þrátt fyrir 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. er íþróttastarf á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða starfsemin krefst mikillar nálægðar eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér óheimil. Um það íþróttastarf og aðra heilsurækt fer eftir 6. mgr. 5. gr.
  2. Aðrir veitingastaðir en þeir sem eru lokaðir skv. 1. mgr. 6. gr. skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.
  3. Þrátt fyrir 4. mgr. 6. gr. skal loka sund- og baðstöðum fyrir almenningi, sbr. þó 6. mgr. 5. gr.
  4. Þrátt fyrir 2. mgr. 4. gr. er starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar óheimil, svo sem starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og önnur sambærileg starfsemi. Takmarkanir þessar taka ekki til starfsemi heilbrigðisstarfsmanna við veitingu heilbrigðisþjónustu en í þeim tilvikum er skylt að notast við andlitsgrímur. Ákvæði þetta tekur ekki til innanlandsflugs og -ferja, leigubifreiða, hópbifreiða og almenningssamgangna.
  5. Ráðherra getur veitt undanþágu frá banni skv. a-lið þessa ákvæðis fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppnisleikja hér á landi, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.

Heilbrigðisráðuneytinu, 18. október 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.