Fara beint í efnið

Prentað þann 1. nóv. 2026

Stofnreglugerð

990/2026

Reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

1. gr. Ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla.

Ráðstöfun afla, sem dreginn er frá heildarafla skv. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, tilgreind í tonnum, er sem hér segir:

Tegund Skel- og rækjubætur Byggðakvóti til fiskiskipa Byggðakvóti Byggðastofnunar Frístundaveiðar Línuívilnun
Tonn Þorskígildistonn Tonn Tonn Þorskígildistonn Tonn Tonn
Þorskur 217 182 966 3.330 2.797 75 300
Ýsa 99 70 2.084 1.026 724 0 500
Ufsi 153 75 968 832 405 0 0
Steinbítur 17 6 206 154 53 0 80
Gullkarfi 55 25 579 640 288 0 30
Keila 10 3 167 214 54 0 20
Langa 8 3 128 146 62 0 25

Til viðbótar ráðstöfun skv. 1. mgr. kemur til úthlutunar á fiskveiðiárinu 2026/2027 sá afli sem ráðstafað var í almennan byggðakvóta í lok fiskveiðiársins 2025/2026 með reglugerð nr. 924/2026, um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1270/2025, um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og reglugerð nr. 925/2026, um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1333/2025, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2025/2026. Sá afli er 197 tonn af þorski, 190 tonn af ýsu, 704 tonn af ufsa, 70 tonn af steinbít, 100 tonn af gullkarfa, 45 tonn af keilu og 42 tonn af löngu. Honum skal úthlutað til viðkomandi byggðarlaga samhliða ráðstöfun skv. 1. mgr.

2. gr. Sérstök úthlutun til skel- og rækjubáta.

Við útreikning uppbóta vegna rækjubáta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997-2005/2006 að frádregnum afla í rækju fiskveiðiársins 2025/2026 á viðkomandi svæði að teknu tilliti til heildarráðstöfunar skel- og rækjubóta skv. 1. gr.

Við útreikning uppbóta vegna skelbáta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007 að teknu tilliti til heildarráðstöfunar skel- og rækjubóta skv. 1. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2026. Verðmætastuðull er 0,52 miðað við þorskígildi fyrir rækju og 0,32 miðað við þorskígildi fyrir hörpudisk. Uppbæturnar eru í þeim tegundum sem tilgreindar eru í 1. gr. og skiptast í þorskígildistonnum milli svæða og bátaflokka samkvæmt eftirfarandi töflu:

Úthlutun/bátar Þorskígildistonn
1. Úthlutun til rækjubáta: 193
Frá Arnarfirði 22
Í Ísafjarðardjúpi 64
Við Húnaflóa 26
Við Skagafjörð 27
Á Skjálfanda 12
Við Öxarfjörð 35
Á Eldeyjarsvæði 4
Í Norðurfjörðum Breiðafjarðar 3
2. Úthlutun til skelbáta: 171
Frá Arnarfirði 1
Við Húnaflóa 6
Við Breiðafjörð 160
Við Hvalfjörð 4
Samtals: 364

3. gr. Ráðstöfun og nýting línuívilnunar.

Línuívilnun skal skiptast þannig innan fiskveiðiársins:

Tegundir/
tímabil
September - nóvember Desember - febrúar Mars - maí Júní - ágúst Samtals
Þorskur 95 114 70 21 300
Ýsa 216 169 62 53 500
Steinbítur 3 9 60 8 80
Gullkarfi 9 10 8 3 30
Keila 8 5 5 2 20
Langa 11 6 6 2 25

Fiskistofa fylgist með línuafla og tilkynnir ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að viðmiðunarafla hvers tímabils verði náð. Náist ekki að veiða viðmiðunarafla einhvers tímabils bætast ónýttar heimildir við viðmiðunarafla næsta tímabils á eftir fyrir viðkomandi ráðstöfun. Fiskistofa tilkynnir síðan frá hvaða degi tiltekinn afli reiknast að fullu til aflamarks.

4. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett skv. 6. gr., 8. gr., 10. gr., 10. gr. a og 11. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, nr. 1270/2025.

Innviðaráðuneytinu, 14. september 2026.

Eyjólfur Ármannsson.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

B deild - Útgáfudagur: 15. september 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.