Prentað þann 3. nóv. 2026
906/2026
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 895/2024, um fyrirkomulag innkaupa ríkisins.
1. gr.
3. tölul. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Landspítalinn er varðar innkaup á vörum og þjónustu sem tengjast veitingu heilbrigðisþjónustu.
2. gr.
Við 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
Sjúkratryggingar Íslands er varðar innkaup á heilbrigðisþjónustu og vörum og þjónustu sem stofnunin annast kaup á samkvæmt lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 99. gr. laga um opinber innkaup, nr. 120/2016, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. ágúst 2026.
F. h. r.
Jón Gunnar Vilhelmsson.
Þorsteinn Júlíus Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 21. ágúst 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.