Fara beint í efnið

Prentað þann 1. des. 2024

Stofnreglugerð

895/2024

Reglugerð um fyrirkomulag innkaupa ríkisins.

1. gr. Markmið og gildissvið.

Markmið reglugerðar þessarar er að innkaup ríkisins séu hagkvæm, fagleg og markviss ásamt því að ná fram auknum sameiginlegum innkaupum.

Reglugerðin tekur til opinberra aðila sem falla undir gildissvið laga um opinber innkaup nr. 120/2016, einkum ríkisstofnana í A1- og A2-hluta.

2. gr. Miðlæg innkaupastofnun ríkisins.

Fjársýsla ríkisins skal fara með hlutverk miðlægrar innkaupastofnunar á vegum ríkisins og veita innkaupaþjónustu í skilningi laga um opinber innkaup.

Hlutverk Fjársýslunnar sem miðlæg innkaupastofnun er að stuðla að bættum rekstri og árangri í starfsemi ríkisins með áherslu á gagnadrifna ákvörðunartöku við innkaup. Fjársýslan skal með gagnsæjum, hagkvæmum og markvissum hætti annast almenn innkaup fyrir ríkisstofnanir í A1- og A2-hluta, annarra en þeirra innkaupa sem falla undir skilgreinda innkaupaflokka aðila með sérstakt útboðsleyfi, ásamt því að rannsaka sameiginlegar þarfir fyrir vörur og þjónustu, nýta sameiginleg innkaup til þarfa ríkisins og vinna að þróun skilvirkra innkaupakerfa sem og greiningu og framsetningu innkaupagagna.

Fjársýslan skal einnig annast almenna fræðslu um opinber innkaup og veita aðstoð og leiðbeiningar um útboð og innkaup og styðja við að þekking skapist um opinber innkaup á almennum markaði eftir því sem þörf krefur.

3. gr. Fyrirkomulag innkaupaferla.

Fjársýsla ríkisins skal gera samninga um sameiginleg innkaup fyrir hönd ríkisins, þar sem lagt er mat á hæfi, verð og eftir atvikum magn innkaupa, og annast útboð og önnur innkaupaferli sem fram fara á vegum ríkisstofnana í A1- og A2-hluta vegna innkaupa, hvort heldur er yfir innlendum viðmiðunarfjárhæðum eða viðmiðunarfjárhæðum fyrir Evrópska efnahagssvæðið.

Komi upp ágreiningur um ákvörðun við val á tilboðum milli Fjársýslunnar sem umsjónaraðila útboðs og kaupanda á vegum ríkisins er heimilt að vísa ágreiningnum til ráðuneytisins.

Öðrum opinberum aðilum sem falla undir lög um opinber innkaup og reglugerðir sem settar eru á grundvelli laganna er jafnframt heimilt að óska eftir gerast aðilar að rammasamningum sem Fjársýslan kemur á fyrir hönd ríkisins eða taka þátt í öðrum sameiginlegum innkaupum.

4. gr. Útboðsleyfi.

Í samræmi við 3. mgr. 99. gr. laga um opinber innkaup er ráðherra heimilt að fela öðrum opinberum aðilum sem falla undir gildissvið laga um opinber innkaup að annast innkaupaþjónustu í ákveðnum innkaupaflokkum enda falli það vel að sérþekkingu viðkomandi aðila og kjarnastarfsemi hans.

Eftirfarandi ríkisaðilum er veitt útboðsleyfi á grundvelli heimildarinnar og er því heimilt að annast innkaup á eigin vegum eða innkaupaþjónustu í nánar tilgreindum innkaupaflokkum sem taldir eru falla vel að sérþekkingu viðkomandi aðila og kjarnastarfsemi þeirra:

  1. Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir er varðar hönnun eða verklegar framkvæmdir vegna viðhalds, endurbóta og byggingar mannvirkja og annarra fasteigna.
  2. Vegagerðin er varðar innkaup vegna hönnunar, byggingu, viðhalds og þjónustu samgöngumannvirkja og reksturs almenningssamgangna.
  3. Landspítalinn er varðar innkaup vegna vöru og þjónustu er varða veitingu annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu á vegum spítalans og annarra heilbrigðisstofnana.

Ríkisaðilar með útboðsleyfi skulu taka mið af gildandi innkaupastefnu ríkisins hverju sinni og þeirri aðgerðaráætlun sem gefin er út á grundvelli stefnunnar ásamt því að skrá viðeigandi gögn vegna tilgreindra mælikvarða stefnunnar. Aðilar skulu jafnframt skila og nýta viðeigandi upplýsingar í vöruhúsi gagna fyrir innkaupagögn ríkisins.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 99. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 og tekur gildi 1. ágúst nk. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. nr. 755/2019 um fyrirkomulag innkaupa.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. júní 2024.

F. h. r.

Guðrún Ögmundsdóttir.

Hrafn Hlynsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.