Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 19. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 11. sept. 2020 – 10. okt. 2020 Sjá núgildandi

890/2020

Reglugerð um veiðisvæði hörpudisks.

1. gr. Veiðisvæði.

Reglugerð þessi tekur til hörpudisksveiða íslenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Veiðisvæði hörpudisks eru sjö. Aðeins skipum sem hafa aflamark í hörpudiski, á viðkomandi svæði, er heimilt að stunda hörpudisksveiðar á því svæði.

Veiðisvæði hörpudisks eru þessi:

  1. Hvalfjörður.
  2. Breiðafjörður (veiðisvæði í Breiðafirði eru sýnd á korti í fylgiskjali):

    1. Breiðasund innan línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

      1. 65°08,00´N - 22°31,00´V
      2. 65°04,00´N - 22°25,00´V
      3. 65°03,00´N - 22°37,00´V
      4. 65°04,00´N - 22°43,00´V
    2. Hvammsfjörður innan línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

      1. 65°08,00´N - 22°31,00´V
      2. 65°08,00´N - 21°50,00´V
      3. 65°01,00´N - 21°53,00´V
      4. 65°04,00´N - 22°25,00´V
  3. Patreksfjarðarflói.
  4. Arnarfjörður.
  5. Ísafjarðardjúp.
  6. Húnaflói.
  7. Skagafjörður.

2. gr. Stjórn veiðanna.

Fiskistofa annast eftirlit með veiðunum og skal tryggja að afli á hverju veiðisvæði eða hluta veiðisvæða sé ekki skaðlega mikill og veiðarnar í samræmi við varúðarsjónarmið. Veiðar teljast skaðlegar ef afli fer fram yfir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir hvert veiðisvæði eða hluta veiðisvæðis.

3. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, ásamt síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 461/2017, um veiðisvæði hörpudisks.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. september 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.