Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 18. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 22. okt. 2012 – 16. maí 2013 Sjá lokaútgáfu

855/2012

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 um merkingu hjólbarða að því er varðar eldsneytisnýtingu og aðrar nauðsynlegar kennistærðir.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), sem vísað er til í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2012 frá 10. febrúar 2012 um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af framangreindum viðaukum samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 frá 25. nóvember 2009 um merkingu hjólbarða að því er varðar eldsneytisnýtingu og aðrar nauðsynlegar kennistærðir.

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19, 29. mars 2012, bls. 481.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, 21. júní 2012, bls. 28.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr., sbr. 2. gr., laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. október 2012.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Ingvi Már Pálsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.