Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Stofnreglugerð

1221/2022

Reglugerð um merkingu hjólbarða að því er varðar eldsneytisnýtingu og aðra mæliþætti.

1. gr. Gildistaka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369.

Eftirtalin reglugerð sem vísað er til í IV. kafla II. viðauka og í IV. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/740, frá 25. maí 2020 um merkingu hjólbarða að því er varðar eldsneytisnýtingu og aðra mæliþætti, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1369 og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1222/2009, sem vísað er til með viðbót við 4. lið í IV. kafla II. viðauka og viðbót við 11. lið og viðbót á eftir 52. lið og brottfall 43. liðar IV. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2022, frá 10. júní 2022. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/740 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63/2022, 29. september 2022, bls. 96-126.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/740, frá 25. maí 2020 um merkingu hjólbarða að því er varðar eldsneytisnýtingu og aðra mæliþætti, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1369 og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1222/2009.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 13. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 855/2012 og reglugerð nr. 1001/2013.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 17. október 2022.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.