Fara beint í efnið

Prentað þann 22. des. 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2020

854/2019

Reglugerð um Þekkingarmiðstöð þróunarlanda.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að stofna sjálfstæða miðstöð um uppbyggingu færni og þekkingar í þróunarlöndum sem ber heitið Þekkingarmiðstöð þróunarlanda. Miðstöðin starfar á sérsviðum þar sem virðisaukandi sérþekking Íslands nýtist í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

2. gr. Þekkingarmiðstöð þróunarlanda.

Miðstöðin fellur undir utanríkisráðuneytið sem sinnir eftirliti og umsýslu með framlögum til miðstöðvarinnar. Miðstöðin starfar á grunni laga nr. 121/2008 um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegra skuldbindinga. Miðstöðin beitir þverfaglegri og samþættri nálgun við að styrkja færni og þekkingu einstaklinga, samtaka og stofnana sem starfa í þróunarlöndum á eftirfarandi fjórum sérsviðum, með það að markmiði að stuðla að:

  1. auknu jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna (í samræmi við heimsmarkmið nr. 5),
  2. aukinni nýtingu jarðhita og annarra endurnýjanlegra orkugjafa (í samræmi við heimsmarkmið nr. 7),
  3. verndun og sjálfbærri nýtingu hafs og vatna (í samræmi við heimsmarkmið nr. 14),
  4. endurheimt landgæða og takmörkun landeyðingar (í samræmi við heimsmarkmið nr. 15).

3. gr. Verkefni.

Miðstöðinni er ætlað að nýta íslenskt þróunarsamvinnufé sem best og hámarka samlegðaráhrif á þessum verkefnasviðum. Miðstöðin gerir samstarfssamninga við íslenska aðila á viðkomandi sérsviðum, Jarðhitaskóla, Sjávarútvegsskóla, Jafnréttisskóla og Landgræðsluskóla, þar sem eftirfarandi starfsemi verður sinnt:

  1. Þjálfun á Íslandi fyrir fagfólk frá þróunarlöndum.
  2. Stuðningur við fyrrum nemendur.
  3. Styttri námskeið og rafrænt fjarnám.
  4. Rannsóknir og framhaldsnám.
  5. Ráðgjafarþjónusta fyrir samstarfsstofnanir og -samtök á landsbundnum og alþjóðlegum vettvangi.

4. gr. Stjórn.

Ráðherra skipar stjórn miðstöðvarinnar til fjögurra ára í senn. Stjórnin skal skipuð þremur fulltrúum. Einn fulltrúi, sem jafnframt er formaður stjórnar, er tilnefndur af utanríkisráðuneyti, einn af mennta- og menningarmálaráðuneyti, og einn fulltrúi óháður stjórnvöldum er tilnefndur er af þróunarsamvinnunefnd. Varamenn eru skipaðir á sama hátt.

Formaður boðar til reglulegra funda, eigi sjaldnar en fimm sinnum á hverju almanaksári. Stjórn skal halda aukafundi ef formaður boðar til þeirra, annaðhvort að eigin frumkvæði eða meirihluta stjórnarmanna. Stjórnin skal setja sér skýrar starfsreglur og verkferla.

5. gr. Hlutverk stjórnar.

Meginhlutverk stjórnar er að gegna stefnumótandi hlutverki ásamt því að sinna eftirliti með starfi miðstöðvarinnar. Helstu verkefni stjórnar eru eftirfarandi:

  1. taka til umfjöllunar og samþykkja árlegar árangursmiðaðar starfsáætlanir miðstöðvarinnar,
  2. taka til umfjöllunar þær skýrslur sem forstöðumaður miðstöðvarinnar leggur fram, þ.m.t. árlega árangursskýrslu og tveggja ára sjálfsmatsskýrslur miðstöðvarinnar,
  3. taka til umfjöllunar og samþykkja skipan í fagráð innan hvers sérsviðs miðstöðvarinnar,
  4. taka til umfjöllunar reglubundnar, óháðar endurskoðunarskýrslur um reikningsskil miðstöðvarinnar og hafa eftirlit með að nauðsynlegt bókhald vegna reikningsskila sé látið í té,
  5. samþykkja reglur og ákvarða verklag við meðferð fjármála og mannauðsmála fyrir miðstöðina, í samræmi við lög,
  6. bera ábyrgð á að reksturinn sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli sem og þær kröfur sem leiða má af alþjóðlegum skuldbindingum.

6. gr. Forstöðumaður.

Forstöðumaður miðstöðvarinnar er ráðinn skv. ákvæðum laga nr. 70/1996 og annast umsjón með daglegum rekstri, gerð samstarfssamninga skv. 3. gr. og eftirfylgni með verkefnum. Hann situr fundi stjórnar án atkvæðisréttar. Forstöðumaður stýrir miðlægum samráðsvettvangi sem stjórnendur Jarðhitaskóla, Sjávarútvegsskóla, Jafnréttisskóla og Landgræðsluskóla taka þátt í.

7. gr. Fjármál.

Kostnaður við rekstur miðstöðvarinnar og verkefni hennar greiðist að hluta úr ríkissjóði í samræmi við fjárlög og fellur þar undir sér fjárlagalið á málefnasviði 35 um opinbera þróunarsamvinnu. Miðstöðinni ber einnig að setja sér markmið um öflun sértekna í samráði við stjórnendur áðurnefndra fjögurra skóla, t.d. með öflun styrkja, mótframlaga frá samstarfsstofnunum og með þátttöku í alþjóðlegum verkefnum.

8. gr. Eftirlit.

Árlegar árangursmiðaðar starfsáætlanir skulu settar fram sem grundvöllur að fjármögnun starfs innan hvers málefnasviðs og er árangur jafnframt útlistaður í árlegri skýrslu sem lögð er fyrir stjórn miðstöðvarinnar og utanríkisráðuneytið. Miðstöðin framkvæmir einnig sjálfsmat á tveggja ára fresti sem lagt er fyrir stjórn. Miðstöðin skal standa skil á ársskýrslum og ársreikningum til utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið gerir úttektir á starfseminni og skal miðstöðin veita ráðuneytinu aðgang að gögnum eins og óskað er eftir.

9. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 10. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands nr. 121/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 23. september 2019.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.